Nemendahópur hverju sinni, ásamt kennara, ákveður viðfangsefni og vinnuaðferðir í áfanganum í samræmi við nútímakenningar í kennslufræði tungumála. Áhersla er lögð á sívaxandi ábyrgð og frumkvæði nemenda og að þeir geti samtímis sinnt hugðarefnum sínum og þjálfast í öguðum vinnubrögðum. Lagt er til að hverjum áfanga verði skipt í þrjú tímabil. U.þ.b. fjórar kennsluvikur er hæfilegur tími til að vinna að stórum verkefnum sem krefjast mikils lestrar og rannsóknar-eða ritstjórnarvinnu. Einnig er mikilvægt að verkefnið fái tíma til að gerjast og þróast áður en endanleg útkoma lítur dagsins ljós. Um er að ræða nokkuð viðamikil verkefni í formi þemavinnu og ferlisverkefna. Þar sem ferlið er ekki síður mikilvægur þáttur en það sem út úr vinnunni kemur.
Efnisöflun,val, úrvinnsla,birtingarform og mat er að mestu leyti í höndum nemenda sjálfra . Áfanginn er ætlaður til frekari þjálfunar færniþátta sem eru nauðsynlegir hverjum einstaklingi til að verða gjaldgengur á dönsku málsvæði sem nemandi, ferðamaður, þátttakandi á fundum og ráðstefnum eða sem gestgjafi í eigin landi
DANS3CG05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
dönskum stjórnmálum, fjölmiðlum og sögu og áhrif þeirra á þjóðfélagsmótun í Danmörku
danskri menningu sem og eigin menningu í alþjóðlegu samhengi
uppruna og útbreiðslu danskrar tungu og skyldleika hennar við íslenskt mál
hvernig hann aflar sér orðaforða sem gerir honum kleift að tileinka sér með góðu móti lesefni í áframhaldandi námi eða starfi
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja fólk með dönsku að móðurmáli án teljandi erfiðleika þegar hann hefur vanist málhreimnum
beita öllum helstu lestraraðferðum af kunnáttu
nota tungumálið á sveigjanlegan og árangursríkan hátt í samræðum
tjá sig af öryggi um margvísleg málefni, bæði almenn og persónuleg
beita ritmálinu í mismunandi tilgangi, fræðilegum og persónulegum, með stílbrigðum og málsniði sem við á og mætir hæfniviðmiðum þrepsins
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja án nokkurra erfiðleika langan málflutning, bæði lifandi mál s.s.fyrirlestra og upptekið efni úr fjölmiðlum, jafnvel þegar talað er óskipulega og þegar samhengi er einungis gefið í skyn en ekki nákvæmlega tilgreint
geta auðveldlega lesið nánast allar gerðir skrifaðs máls, þar með talið fræðilega texta, setningafræðilega eða málfræðilega flókna texta eins og handbækur, sérfræðigreinar og bókmenntaverk
geta nokkuð auðveldlega tekið þátt í öllim samræðum og umræðum með því að beita orðatiltækjum, geta tjáð sig af öryggi og komið fínni merkingartilbrigðum til skila ásamt því að geta umorðað og útskýrt setningar án mikilla vandkvæða.
geta á skýran hátt og reiprennandi gefið lýsingu eða rökrætt á þann hátt sem hentar samhenginu
geta skrifað skýran og lipran texta í ritstíl sem hæfir tilefninu, getað skrifað flókin bréf, skýrslur eða greinar þar sem áhrifarík uppbygging er notuð til að setja málið fram á þann hátt að það hjálpi lesandanum að taka eftir og muna aðalatriði, geta sk
Fjölbreytt námsmat endurspeglar markmið áfangans í öllum færniþáttum í samræmi við evrópsku tungumálamöppuna (ETM).
Námsmat er í formi símats; munnlegra og skriflegra smærri og stærri verkefni sem dreifast jafnt yfir önnina. Þau byggja á kennara-, sjálfs- og jafningjamati og á virkni og verkefnaskilum nemenda, þar sem færniþættirnir lesskilningur, hlustun, tal og ritun, auk málfræði eru metnir.