Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1447160212.66

    Leiðbeinandi í hestamennsku
    LEIH2HE05
    1
    Leiðbeinandi í hestamennsku
    Hestamennska
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er farið í helstu þætti hestatengdar ferðaþjónustu. Nemandinn fær kennslu og æfingu í störfum greinarinnar og lærir að aðstoða fagfólk við að skipuleggja og undirbúa hestaferð. Einnig að leiðbeina byrjendum (börnum og fullorðnum) í hestamennsku. Farið er í öryggismál, samskipti við viðskiptavini og almennar vinnureglur á hestaleigum og reiðskólum. Kennd er skyndihjálp í hestamennsku. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur og gæti verið kenndur í lotum.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hvaða atriði þarf að hafa í huga við undirbúning og framkvæmd á hestaferð
    • Hvernig aðstoða á fagfólk við reiðkennslu og stjórna byrjendahópum á hestaleigum
    • Almennum öryggismálum á hestaleigum og reiðskólum
    • Skyndihjálp í hestamennsku og kunna fyrstu hjálp
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Hafa öðlast leikni í að undirbúa hestaferð gesta á hestaleigu
    • Aðstoða fagfólk við reiðkennslu og stjórna byrjendahópum
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta aðstoðað við undirbúining og útfærslu ferða í hestatengdu ferðaþjónustu fyrirtæki
    • Getað aðstoðað reiðkennara við kennslu byrjenda í hestamennsku
    • Getað notað skyndihjálp og tryggt öryggi gesta ferðaþjónustunnar
    Um er að ræða símatsáfanga. Símatið byggir á ástundun og verkefnavinnu