Í áfanganum eru kynnt grunnhugtök og meginviðfangsefni markaðsfræðinnar frá sjónarhóli ferðaþjónustunnar. Sérstök áhersla er lögð á að veita innsýn í faglegt markaðsstarf ferðaþjónustufyrirtækja, fjallað um söluráða og samval þeirra við markaðssetningu ferðaþjónustu, áhrif umhverfis og aðstæðna, greiningu markhópa, kauphegðun, vöruþróun, verðákvarðanir, kynningarstarf, sölustaði og dreifileiðir. Að auki er fjallað um mismunandi gerðir markaðsrannsókna ásamt markaðsáætlanagerð.
Forkröfur eru engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
• Helstu hugtökum og kenningum innan markaðsfræðinnar.
• Mikilvægi faglegs markaðsstarfs hjá ferðaþjónustufyrirtækjum.
• Áhrifum ytra umhverfis á markaðsstarf fyrirtækja, þá sérstaklega ferðaþjónustufyrirtækja.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
• Nota hugtök markaðsfræðinnar á skýran og skilmerkilegan hátt.
• Beita aðferðum markaðsfræðinnar hvað varðar t.d. markaðshlutun, vöruþróun, verðlagningu, kynningu og dreifingu vöru eða þjónustu í ferðaþjónustu.
• Undirbúa og skipuleggja markaðsrannsóknir.
• Leggja grunn að markaðsáætlun.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að: