Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1455468702.34

    Íþróttir á fyrsta námsári: Íþróttir og almenn heilsurækt
    ÍÞRÓ1AA02
    139
    íþróttir
    almennar íþróttir A
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Unnið með grunnþætti í íþróttum og almennri heilsurækt þar sem áhersla er lögð á þekkingu á upphitun, þoli, styrk, snerpu og liðleika. Einnig er unnið með mismunandi ákefð hreyfingar og nemendur kynnast fjölbreyttum möguleikum heilsuræktar utandyra. Nemendur læra grunnspor í gömlum íslenskum og erlendum dönsum sem og hópdansa. Kennsla fer fram innandyra sem utan.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • mikilvægi upphitunar, þol-, styrktar-, snerpu og liðleikaþjálfunar
    • mikilvægi þess að efla bæði líkamlegan og andlegan styrk með fjölbreyttri og markvissri hreyfingu með mismunandi ákefð
    • mikilvægi útivistar og möguleikum sem bjóðast til hreyfingar utandyra
    • samvinnu og tillitssemi
    • grunnsporum í gömlum íslenskum og erlendum dönsum ásamt hópdönsum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tileinka sér fjölbreyttar leiðir til upphitunar-, þol-, styrktar-, snerpu- og liðleikaþjálfunar
    • finna leiðir til þess að efla bæði líkamlegan og andlegan styrk við mismunandi ákefð
    • búa sig undir útivist við mismunandi aðstæður
    • stunda æfingar og hreyfingu sem stuðlar að bættri líkamsbeitingu og líkamsvitund
    • taka þátt í leikjum og æfingum sem efla jákvæða upplifun og viðhorf til heilsuæktar
    • dansa gamla íslenska og erlenda dansa og hópdansa
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skipuleggja og leysa af hendi verkefni sem snúa að eigin heilsusrækt
    • skipuleggja og meta mismunandi aðferðir til upphitunar, þol-, styrktar-, snerpu- og liðleika- þjálfunar. Einnig að meta mismunandi ákefð við hreyfingu
    • stunda útivist við mismunandi aðstæður
    • leysa af hendi æfingar og leiki sem viðhalda og bæta líkamlega-, andlega- og félagslega þætti
    • geta unnið með öðrum nemendum s.s. í hópverkefnum, boltaleikjum og dansi
    Verkleg próf eru tekin bæði um jól og að vori. Að vori er einnig gefin námseinkunn fyrir allan veturinn sem samanstendur af mætingu og virkni í tímum.