Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Íslenska á öðru námsári: Ritun
bókmenntir, ritun
R
Nemendur skrifi heimildaritgerð um ákveðið efni. Nemendur túlki og greini ljóð. Nemendur lesi nýútkomið íslenskt skáldverk og skrifi bókmenntaritgerð.
ÍSLE3SW03(S) og ÍSLE3MM05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- ritun og heimildavinnu þar sem hann getur metið mismunandi heimildir og lagt mat á áreiðanleika þeirra
- bragfræði og stílfræði
- öllum helstu bókmenntahugtökum
- gerð bókmenntaritgerðar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- notkun handbóka, orðabóka, leiðréttingarforrita og gagnabanka ýmiss konar
- að beita hugtökum bragfræði og stílfræði og öllum helstu bókmenntahugtökum við greiningu texta
- að semja heimildaritgerð þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun og setur efnið fram á greinargóðan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- beita skýru, lýtalausu og blæbrigðaríku máli í ræðu og riti
- taka þátt í málefnalegum umræðum, byggja upp skýra röksemdafærslu, tjá afstöðu og efasemdir um efnið og komast að niðurstöðu
- meta ólíkar heimildir, prentaðar, munnlegar og vefrænar, og áreiðanleika þeirra
- skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í ritmáli
- skrifa viðamikla bókmenntaritgerð þar sem beitt er öllum helstu hugtökum bókmenntafræðinnar
- lesa bókmenntir sér til skilnings, gagns og gamans
- lesa alla texta með gagnrýninni hugsun
skriflegar æfingar
frammistaða í tímum og ástundun