Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Líffræði á öðru námsári á náttúrufræðideild: Almenn líffræði fyrir náttúrufræðideildir
almenn líffræði, dýr, plöntur, örverur
Í þessum framhaldsáfanga á náttúrfræðibraut er fjallað um þróun, flokkun og helstu einkennum örvera, plantna og dýra.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- veirum og fjölgun þeirra
- flokkun, byggingu og lífsháttum baktería, sveppa, fléttna og frumvera
- einkennum og lífsferlum há- og lágplantna
- þróunartengslum lífvera og einkennum dýrafylkinga
- þróun fremdardýra
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- gera smásjársýni
- nota smásjár og víðsjár
- greina plöntur
- kryfja hryggleysingja og fiska
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skilja lífheiminn og fjölbreytileika hans, þróun lífvera og flokkun
- vinna eftir verklýsingum, skrá og túlka niðurstöður á skýrsluformi
- gera sér grein fyrir inntaki vísindagreina og geta fjallað um innihald þeirra
Námseinkunn
Jólapróf
Vorpróf