Ólesin stærðfræði á öðru námsári á eðlisfræðideild 2: Hornaföll, markgildi og diffurreikningur
STÆR3DF09(Ó)
131
stærðfræði
deildun, föll, markgildi
Samþykkt af skóla
3
9
Ó
Hornaföll, hornafallajöfnur og -ójöfnur. Samsett og andhverf föll. Vísis- og lograföll. Markgildi, samfelld og diffranleg föll. Óeiginleg markgildi og aðfellur. Ferilteikningar og hagnýting diffrunar.
STÆR2AH06 og STÆR2AH07(L)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hornaföllum, hornafallareglum og þríhyrningareikningum
samsettum og andhverfum föllum
ræðum veldum
vísis- og lograföllum og helstu eiginleikum þeirra
eiginlegum og óeiginlegum markgildum
samfelldni og diffranleika falla
undirstöðuatriðum ferilteikninga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að beita hornaföllum við þríhyrningareikninga
að umrita með hornafallareglum
að leysa hornafallajöfnur og -ójöfnur bæði með reikningum og myndrænt
að finna andhverfu falla og setja saman föll
að beita veldareglum og meðhöndla rætur og ræða veldisvísa
að greina helstu eiginleika vísis- og lografalla og leysa dæmi um hagnýtingu þeirra
að leysa vísis- og lograjöfnur og -ójöfnur
að reikna markgildi og leiða út markgildi einfaldra falla út frá skilgreiningum með epsilon og delta
að greina samfelldni falla
að beita reglum um samfelld föll
að finna diffurkvóta og afleiður falla og rita jöfnu snertla
að teikna ferla falla með því að finna halla, útgildi, aðfellur og skurðpunkta við ása
að setja upp og leysa bestunarverkefni með diffrun
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega
sýna góð vinnubrögð í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu
útskýra skipulega aðferðir við lausnir margvíslegra verkefna með vísun í reglur
öðlast aukið læsi á mál stærðfræðinnar
greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
búa yfir gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna
gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausn verkefna
reglubundnum skriflegum æfingum
reglubundnum heimadæmum
frammistöðu nemandans í tímum og vinnubrögðum við heimanám
misserisprófum