Það kom upp villa
senda inn
Áfangi
Áfangi Nánari upplýsingar
Stærðfræði á öðru námsári á náttúrufræðideild 2 (haust): Hornaföll, samsett föll og andhverfur
andhverfur, hornaföll, samsett föll
H
Hornaföll, hornafallajöfnur og -ójöfnur. Samsett og andhverf föll.
STÆR2AH06 og STÆR2AH07(L)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
- hornaföllum, hornafallareglum og þríhyrningareikningum
- samsettum og andhverfum föllum
- ræðum veldum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
- að beita hornaföllum við þríhyrningareikninga
- að umrita með hornafallareglum
- að leysa hornafallajöfnur og -ójöfnur bæði með reikningum og myndrænt
- að finna andhverfu falla og setja saman föll
- að beita veldareglum og meðhöndla rætur og ræða veldisvísa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
- skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega
- sýna góð vinnubrögð í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu
- útskýra skipulega aðferðir við lausnir margvíslegra verkefna með vísun í reglur
- öðlast aukið læsi á mál stærðfræðinnar
- greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og byggt upp einfaldar sannanir
reglubundnum skriflegum æfingum
heimadæmum
frammistöðu nemandans í tímum og vinnubrögðum við heimanám
misserisprófum