Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1458054921.25

    Lesin stærðfræði á þriðja námsári á eðlisfræðideild 1: Tegurreikningur og rúmfræði
    STÆR4TR06(L)
    12
    stærðfræði
    diffurjöfnur, fylki, rúmfræði, tegurreikningur, tvinntölur
    Samþykkt af skóla
    4
    6
    L
    Stofnföll og bogaföll. Óákveðin og ákveðin tegur og hagnýting tegurreiknings. Tvinntölur. Diffurjöfnur. Keilusnið. Þrívíð rúmfræði. Fylkjareikningur og ákveður.
    STÆR3DF09Ó og STÆR2DF09(L)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stofnföllum og óákveðnum tegrum
    • helstu eiginleikum bogafalla
    • tegurreikningi og hagnýtingu hans
    • undirstöðuatriðum tvinntalnareiknings, þáttun margliða og vísisfallinu
    • fyrsta og annars stigs diffurjöfnum
    • reikningum með keilusnið
    • vigrum og vigurreikningi í þrívídd
    • undirstöðuatriðum fylkjareiknings og Gauss Jordan eyðingu
    • ákveðum fylkja
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að finna stofnföll og reikna tegur með hluttegrun, innsetningu, umritun og skiptingu í stofnbrot
    • að reikna flatarmál, rúmmál, boglengd og yfirborðsflatarmál með tegrun
    • að umrita tvinntölur milli rétthyrnds forms, pólforms og formsins ez og leysa jöfnur í tvinntalnamenginu.
    • að leysa fyrsta og annars stigs línulegar diffurjöfnur, hliðraðar og óhliðraðar
    • að leysa diffurjöfnur með aðskilnaði breytistærða
    • að leysa diffurjöfnu með innsetningu
    • að finna jöfnur keilusniða og jöfnur snertla við þau
    • að reikna með vigrum og að beita þeim í þrívíðu hnitakerfi
    • að meðhöndla slétta fleti í þrívíðu hnitakerfi
    • að beita reikniaðgerðum á fylki og leysa jöfnuhneppi með Gauss Jordan eyðingu
    • að beita reikniaðgerðum til að reikna ákveður fylkja
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega
    • sýna góð vinnubrögð í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu
    • útskýra skipulega aðferðir við lausnir margvíslegra verkefna með vísun í reglur
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og viðfangsefna og valið aðferð við hæfi
    • öðlast aukið læsi á mál stærðfræðinnar
    • greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
    • greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
    • búa yfir gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna
    reglubundnum skriflegum æfingum reglubundnum heimadæmum frammistöðu nemandans í tímum og vinnubrögðum við heimanám munnlegu yfirlitsprófi úr áföngum síðustu þriggja ára