Stofnföll og bogaföll. Óákveðin og ákveðin tegur og hagnýting tegurreiknings. Tvinntölur. Diffurjöfnur. Keilusnið. Þrívíð rúmfræði. Fylkjareikningur og ákveður.
STÆR3DF09Ó og STÆR2DF09(L)
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stofnföllum og óákveðnum tegrum
helstu eiginleikum bogafalla
tegurreikningi og hagnýtingu hans
undirstöðuatriðum tvinntalnareiknings, þáttun margliða og vísisfallinu
fyrsta og annars stigs diffurjöfnum
reikningum með keilusnið
vigrum og vigurreikningi í þrívídd
undirstöðuatriðum fylkjareiknings og Gauss Jordan eyðingu
ákveðum fylkja
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að finna stofnföll og reikna tegur með hluttegrun, innsetningu, umritun og skiptingu í stofnbrot
að reikna flatarmál, rúmmál, boglengd og yfirborðsflatarmál með tegrun
að umrita tvinntölur milli rétthyrnds forms, pólforms og formsins ez og leysa jöfnur í tvinntalnamenginu.
að leysa fyrsta og annars stigs línulegar diffurjöfnur, hliðraðar og óhliðraðar
að leysa diffurjöfnur með aðskilnaði breytistærða
að leysa diffurjöfnu með innsetningu
að finna jöfnur keilusniða og jöfnur snertla við þau
að reikna með vigrum og að beita þeim í þrívíðu hnitakerfi
að meðhöndla slétta fleti í þrívíðu hnitakerfi
að beita reikniaðgerðum á fylki og leysa jöfnuhneppi með Gauss Jordan eyðingu
að beita reikniaðgerðum til að reikna ákveður fylkja
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega
sýna góð vinnubrögð í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu
útskýra skipulega aðferðir við lausnir margvíslegra verkefna með vísun í reglur
átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og viðfangsefna og valið aðferð við hæfi
öðlast aukið læsi á mál stærðfræðinnar
greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
búa yfir gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna
Námsmat í þessum áfanga er á verklegum þætti stærðfræði sem byggist á:
reglubundnum skriflegum æfingum
reglubundnum heimadæmum
frammistöðu nemandans í tímum og vinnubrögðum við heimanám
skriflegu yfirlitsprófi úr áföngum síðustu fjögurra ára