Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1458055480.26

    Lesin stærðfræði á þriðja námsári á eðlisfræðideild 2: Tegurreikningur og tvinntölur
    STÆR3DT08(L)
    126
    stærðfræði
    deildajöfnur, heildi, samleitni, tvinntölur
    Samþykkt af skóla
    3
    8
    L
    Stofnföll og bogaföll. Óákveðin og ákveðin tegur og hagnýting tegurreiknings. Þrepun, runur og raðir. Talningarfræði. Tvinntölur. Diffurjöfnur. Fylkjareikningur
    STÆR3DF09(Ó) og STÆR2DF08(L)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • stofnföllum og óákveðnum tegrum
    • helstu eiginleikum bogafalla
    • tegurreikningi og hagnýtingu hans
    • grundvallarreglu þrepunar
    • mismunar- og kvótarunum og kvótaröðum
    • undirstöðureglum talningarfræðinnar, þríhyrningi Pascals og tvíliðureglunni
    • undirstöðuatriðum tvinntalnareiknings, þáttun margliða og vísisfallinu
    • fyrsta og annars stigs diffurjöfnum
    • undirstöðuatriðum fylkjareiknings og Gauss Jordan eyðingu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að reikna tegur með hluttegrun, innsetningu, umritun og skiptingu í stofnbrot
    • að reikna flatarmál, rúmmál, boglengd og yfirborðsflatarmál með tegrun
    • að sanna yrðingar með þrepun
    • að reikna markgildi talnarunu og summu mismunar- og kvótarunu
    • að kanna samleitni kvótaraða og reikna summu þeirra
    • að beita reglum talningarfræðinnar
    • að umrita tvinntölur milli rétthyrnds forms, pólforms og formsins ez og leysa jöfnur í tvinntalnamenginu.
    • að leysa fyrsta og annars stigs línulegar diffurjöfnur, hliðraðar og óhliðraðar
    • að leysa diffurjöfnur með aðskilnaði breytistærða
    • að beita reikniaðgerðum á fylki og leysa jöfnuhneppi með Gauss Jordan eyðingu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega
    • sýna góð vinnubrögð í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu
    • útskýra skipulega aðferðir við lausnir margvíslegra verkefna með vísun í reglur
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og viðfangsefna og valið aðferð við hæfi
    • öðlast aukið læsi á mál stærðfræðinnar
    • greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
    • greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
    • búa yfir gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna
    Námsmat í þessum áfanga er á fræðilegum þætti stærðfræði sem byggist á: reglubundnum skriflegum æfingum reglubundnum heimadæmum frammistöðu nemandans í tímum og vinnubrögðum við heimanám munnlegu yfirlitsprófi úr áföngum síðustu þriggja ára