Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1458056001.25

    Lesin stærðfræði á þriðja námsári á náttúrufræðideild 1: Tegurreikningur og líkindareikningur
    STÆR3EE06(L)
    127
    stærðfræði
    Heildun, diffurjöfnur, runur og raðir
    Samþykkt af skóla
    3
    6
    L
    Hagnýting diffrunar. Stofnföll og bogaföll, óákveðin og ákveðin tegur og hagnýting tegurreiknings. Þrepun, runur og raðir. Talningarfræði. Líkindareikningur. Diffurjöfnur
    STÆR3DF07(Ó) og STÆR2DF07(L)
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu eiginleikum bogafalla
    • tegurreikningi og hagnýtingu hans
    • grundvallarreglu þrepunar
    • mismunar- og kvótarunum og kvótaröðum
    • undirstöðureglum talningarfræðinnar, þríhyrningi Pascals og tvíliðureglunni
    • fyrsta og annars stigs diffurjöfnum
    • undirstöðuatriðum líkindareiknings, óháðum og skilyrtum líkindum og tvíliðulíkindum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • að reikna flatarmál og rúmmál með tegrun
    • að sanna yrðingar með þrepun
    • að reikna markgildi talnarunu og summu mismunar- og kvótarunu
    • að kanna samleitni kvótaraða og reikna summu þeirra
    • að beita reglum talningarfræðinnar
    • að leysa fyrsta og annars stigs línulegar diffurjöfnur, hliðraðar og óhliðraðar
    • að leysa diffurjöfnur með aðskilnaði breytistærða
    • að finna stofnföll og reikna tegur með hluttegrun, innsetningu, umritun og skiptingu í stofnbrot
    • að setja upp og leysa bestunarverkefni með diffrun
    • að reikna líkur atburða í endanlegu líkindarúmi og óháðra atburða
    • að reikna skilyrt líkindi og tvíliðulíkindi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega
    • sýna góð vinnubrögð í stærðfræði og nákvæmni í framsetningu
    • útskýra skipulega aðferðir við lausnir margvíslegra verkefna með vísun í reglur
    • átta sig á tengslum ólíkra aðferða við framsetningu hugmynda og viðfangsefna og valið aðferð við hæfi
    • öðlast aukið læsi á mál stærðfræðinnar
    • greina hvenær röksemdafærsla getur talist fullnægjandi sönnun og geta byggt upp sannanir
    • gera greinarmun á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausn verkefna
    • búa yfir gagnrýnni og skapandi hugsun við lausn verkefna
    reglubundnum skriflegum æfingum reglubundnum heimadæmum frammistöðu nemandans í tímum og vinnubrögðum við heimanám skriflegu yfirlitsprófi úr áföngum síðustu þriggja ára