Félagsfræði á öðru námsári á nýmáladeild 1: Almenn félagsfræði. Stjórnmál. Alþjóðasamfélagið.
FÉLA2AA09
64
félagsfræði
Almenn félagsfræði
Samþykkt af skóla
2
9
Í þessum byrjunaráfanga er fjallað um grunneiningar samfélagsins og þær skoðaðar frá sjónarhorni félagsfræðinnar. Áhrif félagslegra afla á aðstæður, hugsanir og athafnir einstaklingsins eru skoðuð. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu á samfélögum nær og fjær svo að þeir verði færir um að taka virkan þátt í umræðum og mynda sér skoðanir á meðvitaðan og gagnrýninn hátt.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hugtökum sem notuð eru til að lýsa menningu og félagsgerð samfélaga
Mikilvægustu félagslegu kerfum ólíkra samfélaga og tilgangi þeirra
Þróun fjölskyldunnar og ólíkum fjölskyldugerðum
Helstu hugtökum stjórnmálafræðinnar s.s. vald, lýðræði og þrískiptingu ríkisvaldsins
Helstu átakalínum í stjórnmálum
Samstarfi á alþjóðavettvangi og þeim alþjóðastofnunum sem Ísland tengist
Skiptingu þjóða heims í ríkar og snauðar
Kenningar um efnahagslega misskiptingu í heiminum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita hugtökum félagsfræðinnar á skýran og skilmerkilegan hátt
Leita upplýsinga á veraldarvefnum og vinna úr þeim
Meta menningarlega og efnahagslega stöðu ólíkra samfélaga
Greina stöðu einstakra ríkja í alþjóðlegu samhengi
Setja fram þekkingu sína í ræðu og riti
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Öðlast yfirsýn og skilning á margbreytileika mannlegra samfélaga
Tjá sig skipulega og gagnrýnið um samfélagsleg álitamál
Geta lagt mat á heimildir og upplýsingar
Geta beitt öguðum vinnubrögðum, borið ábyrgð á eigin námi og unnið með öðrum.