Kenndar eru fimm stundir í viku. Farið er yfir gríska stafrófið, helstu framburðarreglur, málfræðihugtök og grunnatriði málfræði. Beygingar eru útskýrðar og æfðar. Stuttir kennslubókartextar eru lesnir, svo og einstakar setningar og málshættir, og er efnið þýtt og greint málfræðilega. Fjallað er um menningu og sögu Grikkja í máli og myndum í tengslum við lestexta.
GRÍS1FO10
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
stafrófi og framburði forngrísku
grundvallaratriðum grískrar málfræði
beygingu reglulegra fallorða
beygingu fyrstu þriggja kennimynda reglulegra sagnorða
kennimyndum helstu óreglulegra sagna
grunnorðaforða forngrísku
helstu uppflettiritum (orðabók, málfræði)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa og skilja létta kennslubókartexta í samfelldu máli með hjálp orðalista
greina einfalda texta málfræðilega
rita sambærilega erfiða texta á eigin spýtur
leita sér upplýsinga í handbókum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja grískan menningarheim og tengsl hans bæði við rómverska og vestræna menningu
gera sér grein fyrir hlutverki grískra orða og orðstofna í nútímamálum
Námseinkunn byggist á vinnu vetrarins og þátttöku í tímum.
Jólapróf: Skriflegt próf í 90 mínútur.
Vorpróf: Skriflegt próf í 90 mínútur.