Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1476802467.99

    Tölvuleikir og sýndarveruleiki
    TÖLE1IG05
    1
    Tölvuleikir, leikjatölvur
    Inngangur
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Í áfanganum verður fjallað um tölvuleiki í víðu samhengi og skoðað hvernig tölvuleikir tengjast hinum ýmsum greinum. Markmiðið er að gefa nemendum dýpri innsýn í tölvuleiki, þróun þeirra og hlutverk í nútímasamfélagi sem áhugamál, iðnaður og listgrein. Byrjað verður á að fara yfir sögu tölvuleikja og gefa nemendum yfirsýn yfir efnið. Í framhaldinu verða fræðin á bakvið leikina skoðuð og uppbygging þeirra. Nemendur kynnast helstu störfum við gerð tölvuleika. Farið verður í tilgang tölvuleikja, mismunandi virkni spilenda og samanburð við aðra leiki eða afþreyingu. Nemendur kynnast því hvernig kenna má í gegnum tölvuleiki. Í lok áfangans fá nemendur tækifæri til að nýta þekkingu sína til að þróa sína eigin leikjahugmynd og kynna hana fyrir öðrum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • þróun og sögu tölvuleikja
    • möguleikum og takmörkunum tölvuleika
    • uppbyggingu tölvuleikja og áhrif þeirra í samfélagslegu samhengi
    • tilgangi tölvuleikja
    • virkni þeirra sem spila tölvuleiki
    • störfum við gerð tölvuleikja
    • samanburði við aðra afþreyingu
    • námi í gegnum tölvuleiki (e.: computer based learning)
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • tengja tölvuleiki við ólík fræðisvið
    • virkja hugmyndaflugið á gagnlegan hátt
    • að þróa og kynna hugmyndir í samstarfi við aðra
    • líta á tölvuleiki frá mismunandi sjónarhornum og í víðu samhengi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um tilgang tölvuleikja
    • kynna eigin vinnu
    • geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um gerð tölvuleikja
    • geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um uppbyggingu tölvuleikja
    • geta tekið þátt í verkefnavinnu og umræðu um tölvuleiki sem aðferð til náms eða kennslu
    Námsmat er símat sem byggir á verkefnum og þátttöku í kennslustundum, atburðum og heimsóknum.