Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1477312689.16

    Íþróttafræði-þjálfun barna
    ÍÞRF2ÞJ05
    7
    íþróttafræði
    þjálfun
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemendur læri um hlutverk þjálfara í íþróttastarfi, sérstaklega við þjálfun barna á aldrinum þriggja til tólf ára. Lögð er áhersla á skipulag þjálfunar, áætlanagerð og markmiðssetningu. Nemendur fá undirstöðuþekkingu í kennslu- og aðferðafræði íþrótta og þjálfun í að bregðast við íþróttameiðslum.
    INNF1IF05 eða sambærilegur inngangsáfangi
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hlutverki þjálfara í íþróttum
    • að skipuleggja þjálfun og markmið hennar
    • helstu þroskaþáttum barna
    • helstu þjálfunaraðferðum
    • tilgang upphitunar
    • gera sér grein fyrir hlutverki sínu sem fyrirmynd
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • skipuleggja einstakar æfingastundir
    • greina á milli þjálfunar barna og fullorðinna
    • nýta sér upplýsingatækni við skipulag þjálfunar
    • rita fundargerðir
    • stjórna fundum og framsögn
    • Tímaseðlagerð
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • geta stjórnað æfinga tíma barna með þroska þeirra í huga
    • geta stjórnað upphitun fyrir alla aldurshópa
    • geta útbúið tímaseðla
    • geti skipulagt þjálfun til skemmri og lengri tíma
    • geti skipulagt mataræði með það að markmiði að ná árangri í íþróttum
    Leiðsagnarmat sem er nánar útfært í kennsluáætlun og í samræmi við skólanámskrá.