Í þessum áfanga eru frumkvöðlar jarðfræðinnar og helstu grundvallakenningar kynntar til leiks. Leitast er við að kynna setlagafræði og helstu setumhverfi sem og helstu rök fyrir landreki og í beinu framhaldi myndun fellingafjalla. Farið er í almenna jarðsögu og þróun lífs á jörðinni
JARÐ1AJ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu frumkvöðlum jarðfræðinnar erlendum sem innlendum
helstu grundvallarkenningum jarðfræðinnar
setlagafræði og helstu setumhverfum
helstu rökum fyrir landreki og í beinu framhaldi myndun fellingafjalla síðustu 1000 milljón árin
uppruna og myndun jarðarinnar
jarðsögutöflunni þ.e. skiptingu tímakvarðans og á hverju sú skipting byggir
þróun lífríkis á jörðinni frá upphafi til vorra daga
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að beita jarðfræðilegum hugtökum og kenningum
túlka setlög til að skýra myndunarhætti þegar þau mynduðust
lesa út úr jarðsögutöflunni og átta sig á skiptingu hennar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leggja sjálfstætt mat á upplýsingar við úrvinnslu og geta rökrætt niðurstöður sínar