Í áfanganum læra nemendur að kenna börnum og unglingum undirstöðuatriði körfuknattleiks. Lögð er áhersla á kennslu knatttækni fyrir byrjendur. Stefnt er að því að nemendur öðlist ákveðna grundvallarfærni í greininni. Farið er yfir helstu atriði í þjálffræði barna og mikilvægi þess að leikur sé greindur í sundur í smáar einingar, leikæfingar. Áfanginn er bóklegur og verklegur
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
tækniþáttum körfubolta
leikfræði
leikreglum
þjálfunaraðferðum
kennslufræði
skipulagi á þjálfun
sögu körfuknattleiks
þjálfa körfuknattleik
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
útbúa tímaseðil
eiga samskipti við iðkendur og alla þá er koma að greininni
framkvæma grunnæfingar í greininni
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
dæma körfuknattleik
geta þjálfað og leiðbeint börnum
geta útbúið þjálfunaráætlanir
Getur farið fram með margvíslegum hætti meðal annars með verklegum prófum, skriflegum lokaprófum og verkefnavinnu. Einnig má meta mætingu og virkni nemenda til einkunnar.