Í áfanganum er lögð áhersla á helstu þætti sem einkenna ferðaþjónustu sem atvinnugrein. Þá er dregin fram þekking á atvinnugreininni frá alþjóðlegu fræðasamfélagi og sú þekking tengd eðli íslenskrar ferðaþjónustu. Fjallað er almennt um aðdráttaröfl og áfangastaði í ferðaþjónustu, ferðamanninn og þarfir hans og væntingar, stjórnskipulag í ferðaþjónustu , fjölbreytileika starfa og hlutverk menningar fyrir atvinnugreinina. Sérstaklega er svo fjallað um sjálfbærni og áhersla lögð á áhrif ferðamennsku á umhverfi, á samfélög og á hagkerfi áfangastaða. Markmið áfangans er að opna augu nemandans fyrir því umhverfi sem starfsfólk í ferðaþjónustu starfar við og kynna helstu viðfangsefni þeirra.
Forkröfur eru engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Helstu hugtökum ferðaþjónustunnar.
Skipulagi íslenskrar ferðaþjónustu og því regluverki sem umkringir atvinnugreinina.
Eðli aðdráttarafla og áfangastaða.
Ferðamanninum, þörfum hans og væntingum.
Fjölbreyttum atvinnumöguleikum innan greinarinnar.
Íslandi sem áfangastað í ferðaþjónustu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Beita algengustu hugtökum í ferðaþjónustu.
Nota þá miðla sem auka þekkingu og skilning á íslenskri ferðaþjónustu.
Tjá sig um ýmis málefni tengd atvinnugreininni.
Mynda sér skoðanir á málefnum ferðaþjónustunnar á gagnrýnan hátt.
Færa hverskyns málefni ferðaþjónustunnar í samhengi við áherslur sjálfbærrar þróunar.
Leysa verkefni í samstarfi við aðra.
Koma texta frá sér á skilmerkilegan og hnitmiðaðan hátt.
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Eiga skýr og skilmerkileg samskipti við aðila innan ferðaþjónustunnar.
Nýta hugmyndafræði sjálfbærni í hverskonar störfum í ferðaþjónustu.
Geta hagnýtt sér fræðitexta og metið gæði heimilda og gagna er varða atvinnugreinina.
Til að stunda áframhaldandi nám í ferðaþjónustu þar sem áfanginn veitir grunnþekkingu á eðli atvinnugreinarinnar.