Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1487955855.84

    Ferðalandafræði útlanda
    FELÚ4FE05
    1
    Ferðalandafræði útlanda
    Ferðalög erlendis
    Samþykkt af skóla
    4
    5
    Í áfanganum eru helstu áfangastaðir í ferðaþjónustu um heim allan kynntir. Þá er sérstaklega fjallað um hinn íslenska ferðamann og hverju hann sækist eftir á ferðalögum erlendis. Farið er yfir það sem gerir áfangastaði áhugaverða í augum ferðamanna og skoðað hvað gerir hvert svæði/stað að aðdráttarafli í ferðaþjónustu. Þar að auki er fjallað um mismunandi ferðamöguleika, ólíkar aðstæður, misjafnt aðgengi og styrkleika og veikleika ákveðinni ferðamannastaða. Í áfanganum er lögð áhersla á aukna leikni í notkun ferðahandbóka og alþjóðlegra landakorta auk þess að nemendur hljóta aukna þekkingu á helstu upplýsingamiðlum um áfangastaði fyrir ferðamenn um heim allan.
    Forkröfur eru engar.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Ferli skipulagningar og undirbúnings ferða út í heim.
    • Fjölbreytileika ferðamanna og ólíkra þarfa þeirra í ferðaskipulagningu með tilliti til markhóps.
    • Neti samgangna um heiminn og möguleika til ferðalaga.
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Skipuleggja ferðir fyrir mismunandi hópa með mismunandi þarfir.
    • Skipuleggja ferðir með tilliti til fjarlægðar, flugleiða og þjónustuframboðs.
    • Setja saman mismunandi ferðir á skynsamlegan og spennandi máta fyrir hópa jafnt sem einstaklinga.
    • Nýta handbækur, bæklinga, heimasíður og aðra miðla til upplýsingaöflunar.
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Leita upplýsinga um helstu ferðamannastaði í heiminum.
    • Nota alþjóðleg landakort, handbækur og áreiðanlegar heimildir á netinu til að afla upplýsinga um einstaka staði/lönd.
    • Skipuleggja sérsniðnar ferðir fyrir ákveðna hópa eða einstaklinga þar sem tekið er tillit til einkenni ferðamannastaða, framboðs afþreyingar, þjónustu, vegalengda og ferðamöguleika.
    • Skipuleggja og vinna með tilboðsgerð í fjölbreyttar ferðir s.s skíðaferðir, sólarferðir, hópferðir og sérferðir.
    Námsmat samanstendur af fjölbreyttum verkefnum yfir önnina ásamt lokaprófi.