Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1509203847.64

    Vinnustofur
    VINF4VI09
    4
    Vinnustofur
    listsköpun; hugmyndavinna, rannsóknir og mismunandi aðferðir og tækni.
    Samþykkt af skóla
    4
    9
    Vinnustofur eru starfsvettvangur nemenda og gestakennara sem allir eru starfandi ljósmyndarar/listamenn. Tekin eru fyrir verkefni sem tengjast listsköpun; hugmyndavinna, rannsóknir og mismunandi aðferðir og tækni. Kennari í vinnustofu bendir á bækur og ráðleggur um lesefni sem hentar viðfangsefni hverrar vinnustofu og/eða verkefnum einstakra nemenda. Markmið áfangans er að að opna augu nemenda fyrir því hvernig nota má ljósmyndun á mismunandi hátt í listrænum tilgangi og að veita þeim þjálfun í skapandi starfi með miðilinn. Enn fremur er markmiðið að ýta undir sköpunarkraft nemenda og að leitast við að opna þeim nýjar leiðir í persónulegri tjáningu.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig nota má ljósmyndun á mismunandi hátt í listrænum tilgangi
    • fjölbreyttum aðferðum við listsköpun og tjáningu með miðilinn
    • samhengi efnis, aðferða og hugmyndavinnu
    • mikilvægi gagnrýninnar afstöðu til eigin verka og annarra
    • tengslum samtímaljósmyndunar við samtímamyndlist
    • að mismunandi hugmyndafræðileg og fagurfræðileg gildi geta legið til grundvallar myndverkum af ólíkum toga
    • áherslum og aðferðum samtímaljósmyndunar, hvað varðar nálgun, úrvinnslu og tengsl við aðra listmiðla
    • starfsumhverfi og veruleika starfandi listamanna
    • mikilvægi sjálfstæðis í vinnubrögðum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna markvisst frá hugmynd til verks
    • útskýra hugmyndir sínar, ætlanir og vinnuferli
    • taka við og vinna úr gagnrýni á eigin verk og vinnulag
    • velja aðferðir sem henta persónulegum hugmyndum og vinnubrögðum
    • taka afstöðu til eigin verka og annarra og geta sett fram álit sitt á markvissan, uppbyggilegan og útskýrandi máta
    • greina hvernig mismunandi hugmyndafræðileg og fagurfræðileg gildi geta legið til grundvallar myndverkum af ólíkum toga
    • vinna sjálfstætt að útfærslu á eigin hugmyndum og verkum
    • sinna skapandi starfi með miðilinn
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • vinna með fjölbreyttar hugmyndir og mismunandi aðferðir til að vinna persónuleg verk
    • auka við leiðir í persónulegri tjáningu í skapandi starfi með miðilinn
    • taka afstöðu til myndverka á gagnrýnan en faglegan hátt og sneiða hjá smekksdómum
    • geta sett fram skoðanir og álit á faglegan og uppbyggilegan máta og rökstutt niðurstöður sínar faglega
    • setja eigin efnistök í samhengi við aðferðir í listheimi samtímans
    • nýta þekkingu sína til taka sjálfstæðar ákvarðanir í hugmyndavinnu og útfærslu verka
    • geta fjallað um og rökstutt eigin hugmyndir og vinnubrögð
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum
    • þróa með sér persónulega nálgun á miðilinn