Í áfanganum verður farið í áhrifaþætti á líkamsímynd ungmenna, hvernig þeir hafa áhrif á upplifanir, hugmyndir, hugsanir og tilfinningar sem móta sjálfsmynd þeirra og lífsánægju.
Fjallað verður um þær andlegu og líkamlegu breytingar sem verða hjá ungu fólki og þau áhrif sem þær geta haft á viðhorf til okkar sjálfra.
Varpað verður ljósi á þau áhrif sem fjölskyldan, vinir og aðrir jafningjar, fjölmiðlar, samfélagsmiðlar og menning geta haft á líkamsímynd. Námið byggist á hugmyndafræði persónumenntar og því er ætlað að efla gagnrýna hugsun, sjálfsþekkingu, heilbrigðan lífsstíl, stærðfræði- og tungumálakunnáttu. Verkefnum er haldið til haga fyrir raunfærnimat á áframhaldandi námi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
andlegum- og líkamlegum breytingum einstaklinga
þeim þáttum sem geta haft áhrif á líkamsímynd okkar
tilfinningum sem geta komið upp varðandi líkamann og ástæðum á bak við þær
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
efla heilbrigði og vellíðan án áherslu á útlitstengda þætti
lesa úr og skoða með gagnrýnum augum skilaboð sem leynast víða, svo sem í umhverfi okkar og menningu
greina þær tilfinningar sem hann upplifir varðandi líkama sinn og ástæður þeirra
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
koma auga á það hvernig samfélagið getur haft áhrif á líkamsímyndina og líta það gagnrýnum augum
þróa með sér heilbrigða sýn á líkama sinn
Leiðsagnarmat. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram.