Í áfanganum er unnið að því að efla borgaravitund nemenda og fjallað um hvað felst í því að búa í fjölmenningarsamfélagi. Nemendum eru kynnt réttindi og skyldur þegna í lýðræðisþjóðfélagi og leiðir til áhrifa. Fjallað eru um ábyrgð einstaklinga, stöðu þeirra og hlutverk í samfélaginu og hvernig þeir geta haft áhrif. Nemendur kynna sér sjálfboðastörf og aktivisma sem tengist félagslegum og pólitískum þáttum. Námið byggist á hugmyndafræði persónumenntar og því er ætlað að efla gagnrýna hugsun, sjálfsþekkingu, heilbrigðan lífsstíl, stærðfræði- og tungumálakunnáttu. Verkefnum er haldið til haga fyrir raunfærnimat á áframhaldandi námi.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hugtökunum borgaravitund og fjölmenning
réttindum og skyldum fólks í lýðræðissamfélagi
áhrifamætti einstaklinga í samfélaginu.
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
að vera ábyrgur þegn í lýðræðissamfélagi
taka þátt í fjölmenningarsamfélagi
eiga í samskiptum við og virða mismunandi menningarhópa
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
vera virkur þátttakandi í lýðræðislegu samfélagi
sýna virðingu og tillitssemi í samskiptum við annað fólk
geta átt í virkum samskiptum við mismunandi menningarhópa
Leiðsagnarmat. Áhersla á umsagnir sem leiða nemandann áfram.