Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1606423849.84

    Trésmíðar með áherslu á smíði gagnlegra muna
    TRÉS1GM02
    19
    trésmíði
    smíði gagnlegra muna
    Samþykkt af skóla
    1
    2
    Í áfanganum eru kennd grunnatriði trésmíða með áherslu á þekkingu og færni í notkun hand- og rafmagnshandverkfæra, trésamsetningum, límingum, pússningu og yfirborðsmeðferðum. Farið yfir helstu öryggisatriði sem snúa að vinnu á smíðaverkstæði.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • umgengni og notkun á rafmagnshandverkfærum og öðrum handverkfærum
    • helstu öryggisþáttum, vinnuaðstöðu og vinnumhverfi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota mismunandi tegundir verkfæra, véla og efna
    • nota áhöld til mælinga og uppmerkinga
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • smíða hluti í samráði við kennara eða að eigin vali og eftir bestu getu
    Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá