Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1606501566.88

    Listir og sköpun með áherslu á mynd- og hljóðvinnslu
    LISK1MH01
    2
    Listir á starfsbraut
    mynd- og hljóðvinnsla
    Samþykkt af skóla
    1
    1
    Í áfanganum er lögð áhersla á að nemandinn kynnist og öðlist færni í að vinna með aðgengileg klippi og hljóðvinnslu forrit. Í samvinnu við kennara þróar nemandinn hæfni sína til að koma hugsunum sínum og upplifunum á framfæri í gegnum listræna margmiðlun. Upplifun nemandans, áhugi og skynjun leiðir þau verkefni sem unnin eru.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hvernig hægt er að tjá sig í myndbandsgerð og hljóðvinnslu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • auka úthald sitt við listræna verkefnavinnu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta eigin þekkingu og tæknilega hæfni til þess að vinna myndbandsverk
    • þroska listræna hæfileika sína
    Einstaklingsmiðað námsmat - símat, betur útfært í einstaklingsnámskrá