Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1607432693.07

    Bókmenntir, mál- og menningarsaga
    ÍSLE2BG05
    65
    íslenska
    bókmenntir, goðafræði, málsaga
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum áfanga kynnast nemendur norrænni goðafræði og hugmyndaheimi norrænna manna til forna. Þá er einnig fjallað um sögu tungumálsins, uppruna þess og þróun. Nemendur fá þjálfun í munnlegri tjáningu og ritun. Áhersla er lögð á að nemendur þjálfist í úrvinnslu heimilda um sérhæfð efni, einkum bókmenntir. Gert er ráð fyrir að nemendur nýti sér kosti upplýsingatækni við verkefnavinnu.
    Að nemandi hafi lokið áfanganum ÍSLE2RB05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sögu íslenskrar tungu frá upphafi til okkar daga, einkennum hennar og tengslum við önnur tungumál
    • fornum hugmyndaheimi norrænna manna, norrænum goðum og sögum af þeim
    • meginatriðum íslenskrar málstefnu, orðasmíð og merkingu orða og orðasambanda
    • mikilvægi vandaðra vinnubragða við úrvinnslu heimilda
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • nota fræðibækur og -greinar við gerð heimildaritgerða og verkefna
    • vitna í heimildir, vísa til þeirra og skrá á viðeigandi hátt
    • nota bókmenntafræðileg hugtök við greiningu og túlkun
    • tjá skoðanir sínar á námsefninu með skipulögðum og rökstuddum hætti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • leggja mat á gildi heimilda og vinna úr þeim með skipulögðum hætti
    • greina og túlka bókmenntatexta og færa rök fyrir skoðunum sínum jafnt munnlega sem skriflega
    • skrifa vandaðan texta á góðu og blæbrigðaríku máli
    • vinna sjálfstætt og í samvinnu við aðra
    Námsmat byggir á fjölbreyttum verkefnum, bæði munnlegum og skriflegum. Lokaverkefni úr efni Snorra-Eddu er veigamikill þáttur í námsmatinu. Ein könnun verður lögð fyrir úr málsögu en nemendur vinna einnig hópverkefni um efnið þar sem sem ítarlega er fjallað um íslenskt mál frá ýmsum sjónarhornum. Jafnframt skrifa nemendur eina kjörbókarritgerð.