Námið er vettvangsnám í náttúrunni þar sem tekist er á við raunaðstæður. Í ferðinni sameinast flest þau námskeið sem nemandi hefur lokið og þar nýtir hann þá þekkingu, leikni og hæfni sem hann hefur öðlast í náminu til að leysa verkefni ferðarinnar. Megináherslan er á nemandann sjálfan sem ábyrgan fjallamann og leiðsögumann. Leiðsagnarhæfni nemenda er metin í þessum áfanga.
ALPA3GR04
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
skipulagningu fjölbreyttra, lengri fjalla- og óbyggðaferða
rötun og leiðarvali í fjalllendi með GPS, áttavita og kortalestri
sérhæfðum búnaði til fjallamennsku og tjaldferða
þverun straumvatna
útieldun
nauðsynlegum öryggisbúnaði
eigin styrkleikum og takmörkunum
mikilvægi leiðsagnar og hópstjórnunar og aðhlynningu þátttakenda í lengri ferðum
hagnýtri veðurfræði og náttúrufræði
mikilvægi þess að ganga vel um landið
mismunandi aðstæðum í óbyggðum og fjalllendi og viðbrögðum við þeim
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
leiðsegja hópum og huga vel að sjálfum sér og öðrum í ferðum
greina og nýta sér helstu þætti við skipulag og undirbúning ferða
rata með hjálp áttavita og GPS
rata og velja leiðir í fjalllendi, meta áhættu og stýra þeirri hættu
velja staði til að þvera straumvatn
meta aðstæður úti í íslenskri náttúru
finna heppilega tengiliði við skipulag og undirbúning ferða
nýta sér aðstæður í náttúrunni og meta veðurútlit
meta eigin styrkleika og mörk
skipuleggja og stunda lengri fjalla- og óbyggðaferðir og nota viðeigandi búnað af öryggi
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
leiðsegja og stýra hópum og taka ákvarðanir sem leiðtogi
útbúa raunhæfa ferðaáætlun fyrir styttri og lengri ferðir
rata af öryggi og velja öruggustu leiðina í fjalllendi með hjálp áttavita og GPS
geta tekið ákvarðanir miðað við ástand þátttakenda, staðhætti og aðstæður
geta sinnt matarundirbúningi við frumstæðar aðstæður
geta brugðist við á viðeigandi hátt þegar slys ber að höndum í ferðalögum
nýta sér það sem sjá má af veðurútliti
miðla fróðleik um náttúru landsins sem fyrir augu ber á ferðalagi og geta stuðlað að jákvæðri upplifun þátttakenda í útivistarferðum
leggja mat á hættur og stýra mögulegum áhættuþáttum
Símat með áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu nemenda. Ferilbók í tengslum við verk- og vinnustaðanám þar sem við á.