Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1636024812.06

    Vetrarferð - grunnur
    VEFE2GR04
    1
    Vetrarferðir
    rötun í snjó, snjóflóð, tjaldferð, vetrarferðir
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Námið er vettvangsnám þar sem farið er í ferðir úti í náttúrunni að vetrarlagi þar sem tekist er á við raunaðstæður. Nemandi er þjálfaður í að skipuleggja nokkurra daga tjaldferð að vetrarlagi af öryggi og velja viðeigandi búnað fyrir mismunandi ferðir og aðstæður. Farið verður yfir grunnhugtök snjóflóðafræða og notkun hinnar heilögu snjóflóðaþrenningar verður höfð að leiðarljósi. Miðað er við að nemandi verði sjálfstæður í óbyggðum og geti metið aðstæður með tilliti til öryggis t.d. út frá umhverfi, hópnum og breyttum veðurskilyrðum. Nemandi kynnist veðurfræði, veðurspám og að lesa í veðrabrigði. Einnig er áhersla á að nemandinn þjálfast í að aðstoða við leiðsögn með reyndum leiðsögumönnum í snæviþöktu umhverfi og á jökulhettum. Ýmis hugtök sjálfbærni og náttúrufræði eru tekin fyrir og þau útskýrð. Einnig er farið í þá þætti sem snerta umgengni við landið, viðkvæma náttúru og jarðmyndanir.
    JÖKL2GR03, SNJÓ2GR03
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • skipulagi og búnaði fjalla- og tjaldferða að vetrarlagi
    • kortalestri, áttavita, GPS, rötun og leiðarvali í fjalllendi
    • aðhlynningu í lengri ferðum
    • jökulhettum og ferðalögum á þeim
    • nauðsynlegum öryggisbúnaði í snæviþöktu umhverfi og jökulhettum
    • eigin styrkleikum og takmörkunum
    • mikilvægi þess að ganga vel um landið
    • mismunandi aðstæðum í óbyggðum og fjalllendi og viðbrögðum við þeim
    • mikilvægi hópstjórnunar
    • tækifærum til fjallamennsku og hollrar útivistar í nærumhverfi sínu
    • hagnýtri veðurfræði og náttúrufræði
    • grunnhugtökum snjóflóðafræða
    • snjóflóðabúnaði
    • mikilvægi sprungubjörgunar á jökulhettum
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • greina helstu þætti við skipulag og undirbúning vetrarferða
    • rata með hjálp áttavita og GPS
    • nýta sér aðstæður í íslenskri náttúru og meta veðurútlit að vetri til
    • meta eigin styrkleika og takmarkanir
    • huga vel að sjálfum sér og öðrum í lengri vetrarferðum
    • finna heppilegt samstarfsfólk og tengiliði við skipulag og undirbúning ferða
    • skipuleggja vetrarferðir og nota viðeigandi búnað sem þarf í slíkar ferðir
    • rata og velja milli mismunandi leiða í fjalllendi að vetri til, meta áhættu og stýra þeirri hættu
    • nota hina heilögu snjóflóðaþrenningu
    • meta snjóflóðaaðstæður byggðar á upplýsingasöfnun
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • rata af öryggi með hjálp áttavita og GPS í vetrarferðum
    • geta tekið ákvarðanir miðað við eigið líkamsástand, staðhætti og aðstæður
    • velja og nota viðeigandi búnað hverju sinni
    • geta valið og farið í vetrarferðir við hæfi og nýtt þann búnað sem þarf
    • stunda vetrarferðir við mismunandi aðstæður
    • útbúa raunhæfa ferðaáætlun fyrir vetrarferðir
    • velja heppilegt samstarfsfólk eða tengilið í nærumhverfi sínu
    • taka ákvarðanir í samráði við hóp ferðafélaga
    • hagnýta sér það sem sjá má af veðurútliti
    • ferðast af öryggi á jökulhettum og í snæviþöktu umhverfi að vetri til
    • meta snjóflóðaaðstæður, taka viðeigandi ákvarðanir og nota snjóflóðabúnað ef þarf
    • miðla fróðleik um náttúru landsins sem fyrir augu ber á ferðalagi
    • leggja mat á hættur og stýra mögulegum áhættuþáttum
    Símat með áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu nemenda. Ferilbók í tengslum við verk- og vinnustaðanám þar sem við á.