Námið er vettvangsnám þar sem farið er í ferðir úti í náttúrunni þar sem tekist er á við raunaðstæður. Megináherslan er á kajakferðir. Farið er í grunnhugtök kajakferðamennsku og kajaktækni. Nemandi þjálfast í að undirbúa og takast á við krefjandi aðstæður á kajak með tilliti til öryggis, og meta aðstæður m.a. út frá veðurskilyrðum og umhverfi. Lögð er áhersla á að nemandi verði sjálfstæður og þjálfist í að taka skynsamlegar ákvarðanir varðandi öruggt leiðarval og öðlist yfirsýn og þekkingu á þeim búnaði sem þarf í kajakferðum. Nemandi fær innsýn í kajakbúnað og viðeigandi öryggisbúnað.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
notkun sérhæfðs búnaðar til kajakferðamennsku
nauðsynlegum öryggis- og kajakbúnaði
eigin styrkleikum og takmörkunum
mismunandi umhverfi til kajakferða og breytilegum aðstæðum
kajaktækni
mismunandi kajakbúnaði
mikilvægi hópstjórnunar
hagnýtri veðurfræði og náttúrufræði
skipulagi kajakferða
rötun og leiðarvali í kajakferðum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
meta veðurútlit og umhverfi með tilliti til kajakferða
þekkja til mismunandi kajakbúnaðar og kajakferða í mismunandi aðstæðum
finna heppilegt samstarfsfólk og tengiliði við skipulag og undirbúning ferða
rata og velja leiðir á kajak, meta áhættu og stýra þeirri hættu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
ferðast af öryggi á kajak í mismunandi umhverfi
geta tekið ákvarðanir miðað við eigið líkamsástand, staðhætti og aðstæður
velja kajakbúnað við hæfi út frá getu og áætlaðri notkun
nota viðeigandi öryggisbúnað í kajakferðum
útbúa raunhæfa ferðaáætlun fyrir styttri kajakferðir
taka ákvarðanir í samráði við hóp ferðafélaga
nýta sér það sem sjá má af veðurspám og útliti
miðla fróðleik um náttúru landsins sem fyrir augu ber á ferðalagi
meta aðstæður á raunhæfan hátt
leggja mat á hættur og stýra mögulegum áhættuþáttum
Símat með áherslu á leiðsagnarmat sem byggir á vinnu nemenda. Ferilbók í tengslum við verk- og vinnustaðanám þar sem við á.