Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1340030095

    Sprotaverkefni
    MIÐA1SP05
    1
    miðannaráfangi
    sprotaverkefni
    Samþykkt af skóla
    1
    5
    Áfanginn miðar að því að opna fyrir sköpunarkraft og hugmyndaauðgi nemenda og gera þá óhrædda við að prófa, framkvæma og þróa hugmyndir sínar án þess að hræðast útkomuna. Áhersla er lögð á virka þátttöku nemenda sem meðal annars felst í því að skipuleggja verkefni byggð á eigin hugmynd. Verkefnin geta verið ýmsir viðburðir svo sem tónleikar, íþróttamót, ýmis útgáfa, almennar kannanir eða kannanir á viðskiptatækifærum svo eitthvað sé nefnt. Í raun er þessu lítil takmörk sett önnur en þau að verkefnin séu metin hæf af kennara. Farið verður í grunnatriði sem hafa verður í huga við skipulagningu verkefna, svo sem verkáætlun, kostnaðaráætlun og markaðsetningu. Lögð er áhersla á hópavinnu og að verkefnishugmynd hópsins sé raunhæf. Nemendur koma sér saman um eina verkefnishugmynd í hverjum hóp. Þeir þurfa að skilgreina hana, skipuleggja og markaðssetja ef verkefnið krefst þess. Nemendum er í sjálfsvald sett hvort þeir framkvæma verkefnið. Í lokin þurfa hóparnir að kynna vinnu sína fyrir öðrum nemendum og skila skýrslu um framgang verkefnisins. Áhersla er lögð á að meta samstarfshæfni nemenda, afrakstur hópastarfs, framsetningu kynningar, gæði verkáætlunar og lokaskýrslu.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • hugarflæði við hugmyndavinnu
    • mikilvægi á góðri skilgreiningu á hugmynd og verkefni
    • mikilvægi verkáætlana
    • helstu þáttum almenns markaðsstarfs
    • helstu markaðsmiðlum í nærsamfélagi
    • mikilvægi á góðri skýrslugerð við skipulagningu og framkvæmd verkefna
    • sjálfum sér, hugsun og verklagi
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • virkja hugmyndaflugið
    • tjá sig um eigin verk og annarra fyrir framan samnemendur
    • kynna eigin hugmyndir og verkefni
    • vinna í hóp sem meðal annars felur í sér samvinnu, virðingu, jákvæð samskipti, stjórnun, ábyrgð og ákvarðanatöku
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • gera verkáætlun sem hentar þeirra verkefni ...sem er metið með... fullbúinni verkáætlun frá nemanda
    • gera kynningaráætlun fyrir eigið verkefni ...sem er metið með... munnlegri kynningu frá nemanda, sjálfsmati og jafningjamati
    • tileinka sér skapandi lausnarhugsun sem hann getur yfirflutt og nýtt bæði í leik og starfi ...sem er metið með... verkáætlun og framkvæmd hennar
    • öðlast aukna trú á sjálfan sig í skapandi vinnu og þora að stíga út fyrir þægindarammann og vinna með eigin hugmyndir á sjálfstæðan og persónulegan hátt ...sem er metið með... sjálfsmati og símati kennara á vinnusemi
    Lagt er mat á vinnu nemenda í hóp sem og einstaklingsframlag. Þá er lagt fyrir sjálfsmat og jafningjamat.