Bóklegi hlutinn: Fjallað verður um heilsu og hvað heilbrigður lífstíll sé. Fjallað verður almennt um hreyfingu og mikilvægi hennar hjá öllum aldurshópum, þó verður sérstök áhersla á framhaldsskólaaldurinn. Farið verður yfir þrjú algengustu þjálfunarformin (þol, styrkur og liðleiki) og hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers forms skoðuð. Farið verður yfir áhrif vímuefna (tóbak, áfengis og lyfja) á heilsu og líkamlegt form einstaklinga. Farið er yfir uppbyggingu á hreyfingarlotu (einni stakri æfingu) með áherslu á upphitun og niðurlags og áhrifum þeirra á líkamann.
Verklegi hlutinn: Kennslan fer fram utandyra og inni í íþróttasal. Tímarnir verða fjölbreyttir þar sem farið verður í ýmsa leiki ásamt hinum ýmsu íþróttagreinum. Einnig verður farið í þau þjálfunarform sem tekin eru fyrir í bóklegu kennslunni og nemendur fá tækifæri til að prufa hinar ýmsu þjálfunaraðferðir innan hvers þjálfunarforms.
Engar
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvað almennt heilbrigði er
mikilvægi hreyfingar hjá sínum aldurshópi
góðs lífsstíls sem inniheldur hreyfingu
mikilvægi upphitunar fyrir áreynslu og niðurlags eftir áreynslu
fjölbreyttum þjálfunaraðferðum innan þols, styrks og liðleika
uppbyggingu hreyfingarloftugerðar (tímaseðlagerð)
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
iðka fjölbreytta grunnþjálfun og beita mismunandi þjálfunaraðferðum til þess
nota almenna og sérhæfða upphitun
finna púls og nota púlsklukku rétt
búa til skipulagðan og áhugaverðan tímaseðil
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
nýta sér möguleika til hreyfingar í nánasta umhverfi og úti í náttúrunni ...sem er metið með... verklegri kennslu
nýta sér möguleika til að flétta hreyfingu í daglegt líf eftir bestu getu ...sem er metið með... umræðum og skriflegum verkefnum
viðhalda eða bæta eigið líkamshreysti ...sem er metið með... verklegri kennslu
Í áfanganum er leiðsagnarmat með símat alla önnina. Öll verkefni gilda til einkunnar. Nemendur þurfa einnig að standast mætingarkröfur áfangans