Í áfanganum verða skoðaðar mismunandi gerðir heimildarkvikmynda frá ýmsum tímum og rýnt í tilgang þeirra og heimildagildi. Allt frá fullkomlega sviðsettum, leiknum og mikið leikstýrðum heimildarmyndum til algerlega óleikstýrðra heimildarmynda þar sem kvikmyndatökuvél fylgist með líkt og fluga á vegg. Kynntar verða nokkrar helstu meginreglur um uppbyggingu, myndatöku og klippingu heimildarmynda fyrir sjónvarp og kvikmyndahátíðir. Nemendur leggja drög að eigin heimildarmynd sem þeir taka upp og klippa og skila í lok áfanga.
KVMG2KT05 og KVMG2KL05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu grundvallar hugtökum og meginreglum við gerð heimildarkvikmynda
grunnatriðum við val á tökustöðum, beitingu kvikmyndatökuvélar og mismunandi sjónarhornum tökumanns við upptöku heimildarmyndar á tökustað
dramatískri uppbyggingu handrits og kvikmyndatöku fyrir heimildarmyndir sem byggja á sönnum atburðum eða söguþræði
samspili kvikmyndatöku og klippingar við gerð heimildarmynda er miðar að því að það kvikmyndaefni sem unnið er með í klippiforriti nýtist til að segja þá sögu sem um ræðir á skýran og greinargóðan hátt
beitingu mismunandi upptökutækni, s.s. tímaskeiðaupptöku (timelaps) og hæghreyfinga (slow motion) við gerð heimildarmynda
meginmun á eðli og gerð heimildarmynda og leikinna kvikmynda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
gera handrit og tökuáætlun fyrir stutta heimildarmynd, sem nýtir upplýsingar úr umhverfinu á tökustað og fléttar inní á heiðarlegan hátt viðhorf og skoðanir þeirra er heimildarmyndin varðar
meta hvaða tökustaðir henta mismunandi gerðum heimildarmynda og uppfylla þær kröfur er fram koma í handriti og tökuáætlun um sjónarhorn, bakgrunn og beitingu kvikmyndatökuvélar
til að leggja mat á hvernig kvikmyndatöku skuli háttað á tökustað og hvaða upptökutækni og frásagnarform hentar til að skapa myndræna frásögn í formi heimildarmyndar
undirbúa og framkvæma kvikmyndatöku fyrir heimildarmynd í samræmi við handrit og tökuáætlun
færa stafrænt kvikmyndaefni fyrir heimildarmynd inní klippiforrit, merkja það og klippa, ásamt því að litaleiðrétta og hljóðsetja í grunnatriðum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera greinarmun á mismunandi tegundum og uppbyggingu heimildarmynda og leggja mat á eðli þeirra og tilgang
gera handrit og tökuáætlun að styttri heimildarmynd með hliðsjón af þeirri sögu eða þeim veruleika sem heimildarmyndin tekur til
klippa og ganga frá stuttri heimildarmynd
aðstoða við undirbúning og framkvæmd kvikmyndatöku fyrir heimildarmynd með það að leiðarljósi að kvikmyndatakan skili því efni sem þarf til að úr verði fullbúin heimildarmynd
aðstoða við klippingu og frágang styttri heimildarmynda í sérhæfðu klippiforriti