Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1359038912

    Lýsing og hljóð á tökustað
    KVMG2LÝ05
    6
    kvikmyndagerð
    lýsing og hljóð á tökustað
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    KG
    Í áfanganum er unnið með lýsingu og hljóðupptöku á tökustað. Nemendur kynnast hlutverki hljóðsetningar og tónlistar við uppbyggingu kvikmynda með því að horfa á valin atriði úr kvikmyndum með tilliti til lýsingar þeirra og hljóðlegrar uppbyggingar. Nemendur undirbúa lýsingu á tökustað og þjálfa grunnatriði við upptöku á hljóði fyrir kvikmynd. Nemendur hljóðvinna og hljóðsetja nokkur stutt myndskeið, með áherslu á samspil mismunandi lýsingar og hljóðs.
    KVMG2KT05 og KVMG2KL05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum og verkferlum sem notuð eru þegar undirbúin er lýsing sviðsmyndar/tökustaðar og upptaka á hljóði við gerð kvikmyndar
    • mismunandi blæbrigðum og andrúmsloft sem unnt er að kalla fram með mismunandi tegundum lýsingar á leikmynd/tökustað
    • mismunandi blæbrigðum og andrúmsloft sem unnt er að framkalla með hljóðsetningu og tónlistarvali fyrir kvikmyndir
    • tæknilegum lausnum við upptöku á fjölbreytilegu hljóði fyrir kvikmynd
    • helstu hugtökum og verkferlum sem notuð eru þegar unnið er að litaleiðréttingu og áferð kvikmyndar í sérhæfðu klippiforriti og sérhæfðu forriti við myndræna eftirvinnslu kvikmyndar (t.d. Motion, Avid Symphony og Permier)
    • helstu hugtökum og verkferlum sem notuð eru þegar unnið er að hljóðsetningu kvikmyndar í sérhæfðu klippiforriti og sérhæfðu hljóðvinnsluforriti við eftirvinnslu kvikmyndar (t.d. Pro Tools)
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • undirbúa á faglegan hátt lýsingu á leikmynd/tökustað eftir þeim leiðbeiningum sem fram koma í handriti og tökuáætlun
    • velja búnað og staðsetja við lýsingu á leikmynd/tökustað í samræmi við þarfir
    • undirbúa á faglegan hátt hljóðupptöku á leikmynd/tökustað eftir þeim leiðbeiningum sem fram koma í handriti og tökuáætlun
    • gera greinarmun á aðferðum og tækni við upptöku á mismunandi tegundum hljóðs fyrir kvikmyndir eftir eðli þeirra og tilgangi
    • vinna markvisst og faglega að litaleiðréttingu og áferð kvikmyndar í sérhæfðu klippiforriti og sérhæfðu myndvinnsluforriti
    • vinna markvisst og faglega að hljóðsetningu kvikmyndar í sérhæfðu klippiforriti og sérhæfðu hljóðvinnsluforriti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • nýta faglega þekkingu sem hann hefur aflað sér til að greina mismunandi þarfir fyrir lýsingu á tökustað eftir eðli og frásagnarmáta kvikmyndaverks
    • nýta faglega þekkingu sem hann hefur aflað sér til að velja og staðsetja ljós og búnað vegna lýsingar á leikmynd/tökustað
    • nýta faglega þekkingu sem hann hefur aflað sér til að greina mismunandi þarfir fyrir hljóðupptöku fyrir kvikmynd og framkvæma þær í samræmi við þær leiðbeiningar er fram koma í handriti
    • nýta þekkingu og leikni til að starfa sem aðstoðarstarfskraftur við vinnu í sérhæfðum forritum við litaleiðréttingu, áferð og myndrænan lokafrágang kvikmyndar
    • nýta þekkingu og leikni til að starfa sem aðstoðarstarfskraftur við vinnu í sérhæfðum forritum við hljóðvinnslu og hljóðsetningu kvikmyndar
    Verkefnaskil