Í áfanganum vinna nemendur með eigin hugmynd að vandaðri stuttmynd, sem verður lokaverkefni þeirra í kvikmyndagerð. Hugmyndinni er í upphafi skilað sem útdrætti að mynd, sem síðan er unnin áfram í samvinnu og undir handleiðslu ráðgjafa. Samhliða er lögð fram myndstikla til kynningar á verkinu fyrir framleiðendum og fjármögnunaraðilum. Þegar verkinu er lokið á það að vera hæft til þátttöku í samkeppni framleiðenda um gott handrit fyrir stuttmynd/heimildarmynd. Verkið skilast sem fullbúið handrit að stuttmynd ásamt, myndstiklu og nauðsynlegum fylgigögnum. Unnið undir leiðsögn kennara og faglegs rýnihóps.
KVMG2HE05 og KVMG2LÝ05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
hvernig hugmynd er færð í búning sögu sem unnin er undir leiðsögn rýnihóps í fullbúið handrit að stuttmynd/heimildarmynd
hvernig gera skal tökuáætlun, kostnaðaráætlun og fjármögnunaráætlun fyrir stuttmynd/heimildarmynd
hvernig vinna skal fullbúna kynningarstiklu fyrir framleiðendur með það að markmiði að hún fangi athygli og veki áhuga
hvaða lykilstarfsfólk þarf að ráða vegna framleiðslu myndarinnar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
nýta þekkingu sína til þess að vinna á faglegan og gagnrýninn hátt með góða hugmynd þannig að úr verði framúrskarandi handrit að stuttmynd/heimildarmynd
vinna á hlutlægan og faglegan hátt með ráðgjöfum, leikstjóra og framleiðanda að fullnaðarfrágangi handrits
gera lista yfir lykilstarfsfólk við upptökur og framleiðslu á væntanlegri stuttmynd/heimildarmynd og gera tillögu að verkaskiptingu þeirra í milli
gera áætlun yfir tökustaði, helstu leikmuni, leikmynd og búnað, sem þarf til að framleiða stuttmynd/heimildarmynd
nýta þekkingu sína til gagnrýnna skoðanaskipta um uppbyggingu handrits fyrir stuttmynd/heimildarmynd
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera góða hugmynd að sögu að framúrskarandi handriti fyrir stuttmynd/heimildarmynd, með ítrekaðri endurskoðun og rýnivinnu
skila fullbúnu handriti að stuttmynd/heimildarmynd með fylgiskjölum fyrir framleiðanda og leikstjóra og lykilstarfsfólk
vinna sem faglegur gagnrýnandi í rýnihópi fyrir handrit að stuttmynd/heimildarmynd
finna og velja tökustaði stuttmyndar/heimildarmyndar og gera tímaáætlun um tökur
vinna nauðsynleg fylgigögn, kynningarefni og skjöl fyrir framleiðanda