Lokaverkefni - stuttmynd/heimildarmynd fyrir kvikmyndahátíðir
KVMG3LO05
1
kvikmyndagerð
lokaverkefni
Samþykkt af skóla
3
5
KG
Í áfanganum vinna nemendur sem framleiðendur með eigið handrit frá áfanganum KVMG2FK05 – Frá hugmynd til framleiðslu kvikmyndar. Ekki er útilokað að nemandi sinni öðrum lykilhlutverkum, s.s. leikstjórn eða klippingu en í áfanganum velur nemandinn sem framleiðandi samnemendur til þess að sinna lykilstörfum við gerð myndarinnar. Kvikmyndatökuáfanginn KVMG3TU05 er kenndur samhliða og nýtast upptökur úr honum fyrir þennan áfanga. Í lok áfangans skila nemendur fullbúinni stuttmynd eða heimildarmynd sem á að vera tilbúin til þátttöku á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum. Nemendur skili auk þess nauðsynlegu kynningarefni fyrir myndina.
KVMG2FK05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
mati og vali á hentugum tökustöðum til kvikmyndunar
að meta hvaða vélar, tæki og aðstöðu þarf að útvega til upptöku á mynd og hljóði fyrir stuttmynd/heimildarmynd
að meta hvaða sviðsmuni, leikmuni og búninga þarf að útvega vegna upptöku stuttmyndar/heimildarmyndar
gerð áætlunar um ráðningu lykilstarfsfólks í undirbúning, tökur, klippingu, hljóðsetningu, litaleiðréttingu og lokafrágang stuttmyndar/heimildarmyndar
gerð áætlunar um vinnslu og dreifingu kynningarefnis fyrir stuttmynd/heimildarmynd
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
undirbúa upptöku stuttmyndar/heimildarmyndar með ráðningu lykilstarfsfólks og verkaskiptingu á milli þess
gera tillögu um tæki og kvikmyndatökubúnað er útvega þarf fyrir viðkomandi starfsfólk á tökustað
gera tillögu um hvaða sviðsmuni, leikmuni og búninga þarf að útvega vegna upptöku stuttmyndar/heimildarmyndar
gera áætlun um fullvinnslu kynningarefnis fyrir stuttmynd/heimildarmynd og sjá um framkvæmd hennar
vinna á mismunandi sviðum við framleiðslu metnaðarfullrar stuttmyndar/heimildarmyndar í samstarfi við lykilstarfsfólk á tökustað
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
gera faglega áætlun um framleiðslu metnaðarfullrar stuttmyndar/heimildarmyndar til þátttöku á alþjóðlegum kvikmyndahátíðum og aðstoða við framkvæmd hennar
aðstoða við undirbúning á framleiðslu stuttmyndar/heimildarmyndar með vali á tökustöðum og aðstöðu, tækjum og búnaði
aðstoða við undirbúning á framleiðslu á metnaðarfullri stuttmynd með ráðningu lykilstarfsfólks
starfa sem fyrsti og/eða annar aðstoðarleikstjóri á tökustað kvikmyndar
aðstoða við gerð og framkvæmd áætlunar um kynningu og dreifingu stuttmyndar/heimildarmyndar