Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361279740

    Fab lab smiðja
    NÝSK2FA04_1
    None
    nýsköpun
    fab lab smiðja
    Samþykkt af skóla
    2
    4
    Farið er almennt yfir búnað í Fab Lab smiðjunni og möguleika sem felast í notkun hans. Farið er yfir notkun á Inkscape tvívíddar vektor hugbúnaði. Kennt hvernig stilla á stærð síðu, teikna upp hluti, breyta, flytja á mismunandi skráarsnið, breyta stærð, lögun og litum á hlutum. Kennt hvernig á að breyta raster myndum í vektor myndir. Farið er yfir helstu skipanir í teikniforritinu Sketchup og hvernig er hægt að nýta sér það til ýmissa verkefna. Farið er yfir grunnatriði í notkun á tölvustýrðum fræsara, 3D prentara, 3D skanna og gerð uppsteypumóta.
    1. þreps Fab Lab Smiðja
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hugmyndafræði Fab Lab
    • Þeim möguleikum sem teikniforritið Sketchup hefur uppá að bjóða
    • Helstu efnistegundum sem notaðar eru við hin ýmsu verkefni
    • Kostum og göllum hinna ýmsu efnistegunda
    • Getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
    • Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun úrgangs
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina kosti og galla mismunandi samsetningaraðferða
    • Teikna í teikniforritinu Inkscape og Sketchup, notað þær teikningar sem vinnuteikningar fyrir laser, vínylskera, tölvustýrðan fræsara, 3D prentara og 3D skanna
    • Setja inn verkefni á netið
    • Skipuleggja og framkvæma eigin hugmyndir
    • Bera ábyrgð á efnisvali út frá því verkefni sem hann hefur kosið sér
    • Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt sé að framleiða hana, teikningar, efnisval og annað sem hefur áhrif sé sett upp á skipulegan og aðgengilegan máta
    Skrifleg umfjöllun og myndir um hvert verkefni á tilskyldum tíma. Einnig verður tekið til mats: • Frumkvæði, frumleg hönnun • Vinnusemi • Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur • Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína