Í áfanganum er fjallað um rafmagn og rafmagnsöryggi. Nemendur þekki almennar varnarráðstafanir í umgengni við rafmagn og varnir gegn of hárri snertispennu. Kynning á helstu verkfærum sem notuð eru í rafiðnaði. Fjallað um framleiðslu og dreifingu á raforku.
Farið yfir notkun leiðara og algengustu ljósgjafa og rofa.
Nemandinn fær að framkvæma afeinangrun og ganga frá endabúnaði, einnig að tengja klær og setja saman fjöltengi.
Kennsla í notkun lóðbolta og lóðæfingar. Kynning á íhlutum sem notaðir eru í rafrásir. Farið yfir hönnun rafrása og yfirfærsla á prentplötu. Smíðuð verður einföld rafrás eða sett saman lítið rafeindatæki.
Farið yfir lestur teikninga.
Kennd notkun mælitækja sem notuð eru í rafiðnaði.
Fab Lab Smiðja 1. þrep
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Almennum varnarráðstöfunum í umgengni við rafmagn
Vörnum gegn of hárri snertispennu
Helstu verkfærum sem notuð eru í rafiðnaði
Framleiðslu og dreifingu á raforku
Teikningalestri
Hönnun rafrása og þeim íhlutum sem notaðir eru
Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun sorps
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Greina á milli leiðara og notkun þeirra
Meðhöndla algengustu ljósgjafa og rofa
Afeinangra og ganga frá endabúnaði
Tengja saman klær og setja saman fjöltengi
Nota lóðbolta og smíða einfaldar rafrásir eða setja saman lítið rafeindatæki
Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til endurbóta
Geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál
Skrifleg skýrsla um hvert verkefni og verkefnaskil.
Einnig verður tekið til mats:
• Frumkvæði
• Vinnusemi
• Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur
• Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína