Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361281418

    Málmsmiðja
    NÝSK1MÁ06_6
    None
    nýsköpun
    málmsmiðja
    Samþykkt af skóla
    1
    6
    Nemendum er kynnt almennt málmsmíðaverkstæði, hvað það inniheldur, sem og helstu umgengis og öryggisreglur. Þá er farið yfir og kennd meðferð og notkun, helstu handverkfæra og einföldustu tækja til smíða, svo og algeng mælitæki, sem notuð eru í málmiðnaði. Kennd eru undirstöðuatriði í lestri vinnuteikninga. Unnið að verkefnum þar sem fyrir kemur að lesa teikningar, mæla, merkja, saga, sverfa, bora, snitta, slípa, o.s.frv. sem og notkun handbóka og tafla. Nemendur kunni skil á vinnsluhætti rennibekkja, borvéla og fræsivéla, og hafi fullkomið vald á öryggismálum og umhirðu þessara spóntökuvéla, sem og annarra tækja, véla og verkfæra sem unnið er með. Nemendur öðlist nægilega færni til að leysa einföld verkefni í rennibekk innan 0,1 mm málvika. Farið er yfir grunnþætti í þunnplötusmíði, helstu verkfæri og vélar, þannig að nemandinn geti smíðað einfalda hluti. Samhliða kennslunni fer fram fræðsla um slysahættu og öryggisþætti á vinnustað.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Helstu málmtegundum sem notaðar eru við hin ýmsu verkefni
    • Kostum og göllum hinna ýmsu málmtegunda
    • Algengum samsetningum
    • Undirstöðuatriðum í teikningalestri
    • Getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
    • Þeirri slysahættu og öryggismálum sem þarf að hafa í huga
    • Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun úrgangs
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina kosti og galla mismunandi samsetningaraðferða
    • Skipuleggja og framkvæma eigin hugmyndir
    • Lesa einfaldar teikningar
    • Bera ábyrgð á efnisvali
    • Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt sé að framleiða hana, teikningar, efnisval og annað sem hefur áhrif sé sett upp á skipulegan og aðgengilegan máta
    • Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til
    Skrifleg skýrsla um hvert verkefni og verkefnaskil. Einnig verður tekið til mats: • Frumkvæði, frumleg hönnun • Vinnusemi • Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur • Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína