Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361281824

    Lokaverkefni nýsköpunar- og tæknibrautar
    NÝSK3LS06_1
    None
    nýsköpun
    lokaverkefni, smiðjur
    Samþykkt af skóla
    3
    6
    Að nemendur geti tekið fyrri þekkingu á hinum ýmsu efnum og tengt þau saman í eitt stykki. Hér eiga nemendur að vinna að verkefni sem býr yfir ólíkum efnum og tengja þau saman í eina heild. Hér reynir á sköpunarhæfni nemandans, frumkvæði og sjálfstæða hugsun.
    Leður- og roðsmiðja, Málmsmiðja, Plastsmiðja, Trésmiðja, Fab Lab Smiðja 1. og 2. þrep.
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hvernig hægt er að nýta hin ýmsu efni í tengingu við önnur ólík efni
    • Kostum og göllum hinna ýmsu efnistegunda
    • Getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
    • Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun úrgangs
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina kosti og galla mismunandi samsetningaraðferða
    • Geta skipulagt og framkvæmt eigin hugmynd
    • Bera ábyrgð á efnisvali og annast birgðahald þeirra efna sem nota skal við framkvæmdina
    • Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt sé að framleiða hana, teikningar, efnisval og annað sem hefur áhrif sé sett upp á skipulegan og aðgengilegan máta
    • Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til úrbóta
    • Geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi öryggismál
    Skrifleg skýrsla og verkefnaskil. Einnig verður tekið til mats: • Frumkvæði, frumleg hönnun • Vinnusemi • Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur • Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína