Að nemendur geti búið til ferilmöppu fyrir Netið á rafrænu formi. Farið er yfir hönnun, innihald og mismunandi form rafrænna ferilmappa sem gerðar eru sérstaklega fyrir Netið. Nemendur gera sína eigin möppu og koma fyrir á Netinu.
Trésmiðja, Rafsmiðja, Plastsmiðja, Leður og roðsmiðja og Frumkvöðlafræði
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Algengustu aðferðum og formum til þess að miðla verkum sínum á rafrænu formi á Netinu
Kostum og göllum mismunandi aðferða við að setja saman efni á rafrænu formi
Hvernig skilvirkast er að koma efni frá sér í rafrænu formi, meðal annars með tilliti til útbreiðslu og áhorfs á Netinu
Hvernig útlit og framleiðsla á verkum sínum getur haft áhrif á markaðsetningu hennar
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Skipuleggja og framkvæma eigin hugmynd
Gera einfalt skapalón að rafrænni ferilmöppu á textaskjali
Taka upp rafrænar myndskrár á einföldu formi
Smíða rafræna ferilmöppu með mynd og hljóðskrám, klippa myndskrár, bæta inn texta og hljóðsetja einfaldar myndskrár fyrir Netið
Keyra út úr myndvinnsluforriti ferilmöppu á rafrænu formi annars vegar aðgengilega fyrir takmarkaðan hóp notenda og hins vegar fyrir opin aðgang á Netinu
Velja viðeigandi forrit/form með tilliti til framkvæmdarinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta komið hugmynd sinni á það form að mögulegt er að miðla henni á aðgengilegan máta inn á Netið
Setja saman í myndvinnsluforriti teikningar, myndir af verkum, verkefnalýsinar, efnisval og annað sem hefur áhrif á skipulegann og aðgengilegann máta
Geta greint hvort tilskyldum reglum sé fylgt eftir varðandi höfundarétt
Verkefnaskil.
Einnig verður tekið til mats:
• Frumkvæði, frumleg hönnun
• Vinnusemi
• Frágangur, umgangur um vélar og vinnuaðstöðu sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur
• Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína