Nemendum gefst kostur á að vera í samstarfi við bændur, verslanir eða framleiðslufyrirtæki um frumkvöðlastarf innan matvælageirans. Að nemendur búi yfir færni og þekkingu til þess að geta unnið með hin ýmsu matvæli í tengslum við hönnun. Geta notfært sér það við útfærslur í vinnu þeirra í áfanganum.
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
Hvaða matvæli eru helst notuð og í hvaða tilgangi
Kostum og göllum hinna ýmsu matvælategunda
Þekkingu á algengum samsetningum
Getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun sorps
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
Greina kosti og galla þeirra matvæla sem unnið er með
Geta skipulagt og framkvæmt eigin hugmynd
Bera ábyrgð á efnisvali og annast birgðahald þeirra efna sem nota skal við framkvæmdina
Velja viðeigandi áhöld og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
Geta komið hugmynd sinni á framfæri með því að búa til mismunandi samsetningar
Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mælt fyrir um aðgerðir til endurbóta
Geta notfært sér nær umhverfi sitt til efnisvals í verkefni sín
Skrifleg skýrsla um hvert verkefni og verkefnaskil.
Einnig verður tekið til mats:
• Frumkvæði, frumleg hönnun
• Vinnusemi
• Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur
• Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína