Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1361357605

    Hönnun 2, verkleg smiðja
    NÝSK2HV03_3
    None
    nýsköpun
    hönnun 2, verkleg smiðja
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Að nemendur búi yfir færni og þekkingu til þess að geta unnið með eitthvað af eftirtöldum efnum sem þekkjast innan hönnunar, meðal annars; leir, gler, ull, gull, silfur og ýmis önnur efni sem koma til sögu hönnunar. Þekkja helstu galla og kosti þess við hönnun í hinum ýmsu viðfangsefnum. Geta notfært sér það við útfærslur í vinnu þeirra í áfanganum sem og í framtíðinni, þar á meðal tengingu við önnur efni.
    Hönnun 1, verkleg smiðja
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • Hvenær efnið er helst notað og í hvaða tilgangi
    • Kostum og göllum efnistegundarinnar
    • Þekkingu á algengum samsetningum
    • Getu og takmörkum mismunandi tækjabúnaðar með tilliti til efnisvals
    • Aðferðum sem hafa að markmiði að bæta nýtingu hráefna, sem og förgun sorps
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • Greina kosti og galla efnisins
    • Geta skipulagt og framkvæmt eigin hugmynd
    • Bera ábyrgð á efnisvali og annast birgðahald þeirra efna sem nota skal við framkvæmdina
    • Velja viðeigandi verkfæri og tækjabúnað með tilliti til framkvæmdarinnar
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • Geta komið hugmynd sinni á framfæri með því að búa til hin ýmsu líkön úr mismunandi efnum
    • Greina orsakir galla sem fram koma í framkvæmd og mæla fyrir um aðgerðir til endurbóta
    • Geta notfært sér nær umhverfi sitt til efnisvals í verkefni sín
    Skrifleg skýrsla um hvert verkefni og verkefnaskil. Einnig verður tekið til mats: • Frumkvæði, frumleg hönnun • Vinnusemi • Frágangur, umgangur um vélar og verkstæði sem og tillitsemi við kennara og aðra nemendur • Vandvirkni og handbragð nemandans við vinnu sína