Í áfanganum verður viðfangsefnið bókmenntasaga og bókmenntir fyrri alda; Völuspá, Hávamál, Íslendingasaga og lærdóms- og upplýsingaröld. Haldið verður áfram að þjálfa nemendur í ritun og heimildavinnu.
ÍSLE2MN05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
ritgerðarsmíð og heimildavinnu
orðaforða sem nægir til að lesa helstu verk íslenskrar bókmenntasögu
öllum helstu bókmenntahugtökum, mismunandi tegundum bókmennta og tímabilum í íslenskum bókmenntum fyrri alda
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
rita heimildaritgerðir þar sem hann beitir gagnrýninni hugsun við úrvinnslu og kemur efninu á framfæri á skýran og greinargóðan hátt á blæbrigðaríku máli
ganga frá heimildaritgerðum og hvers kyns texta og að nýta sér uppbyggilega gagnrýni
skilja og nota viðeigandi stílbrögð, orðatiltæki og menningarlegar vísanir í tal- og ritmáli
draga saman og nýta á viðurkenndan og gagnrýninn hátt upplýsingar úr hvers kyns heimildum og meta áreiðanleika þeirra
flytja af öryggi vel uppbyggða kynningu á krefjandi efni
lesa sér til gagns og gamans texta frá fyrri öldum
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrifa skýran og vel uppbyggðan texta og geta valið ritstíl eftir aðstæðum og viðtakendum
beita málinu á viðeigandi og árangursríkan hátt við mismunandi aðstæður
tjá rökstudda afstöðu og taka virkan þátt í málefnalegri umræðu
draga saman aðalatriði, beita gagnrýninni hugsun við lestur, túlkun og úrvinnslu krefjandi texta, átta sig á samfélagslegri skírskotun og ná duldum boðskap og hugmyndum
sýna frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
sýna þroskaða siðferðisvitund, víðsýni, sköpunarhæfni og samlíðan í málflutningi sínum, umfjöllun og verkum