Áfanginn er valáfangi og í honum er lögð áhersla á að nemendur vinni sjálfstætt að stærri verkefnum og kynnist fjölbreyttari og flóknari textum en áður. Áhersla er lögð á aukna færni bæði í rit- og talmáli. Fjölbreytt textaval og sjálfstæð vinna nemenda leiðir til fjölþættra vinnubragða þeirra við lausn einstaklings- jafnt sem hópverkefna.
DANS2MR05 eða góður árangur úr DANS2RM07
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
dönsku þjóðlífi, fjölmiðlum, stjórnmálum og danskri menningu
því hvernig danska nýtist honum á Norðurlöndum almennt
öllum almennum orðaforða, orðasamböndum og þverfaglegum orðaforða sem nýtist í áframhaldandi námi eða starfi
helstu hefðum bæði í tal- og ritmáli
mismunandi bókmenntatextum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja eðlilegt talað mál við mismunandi aðstæður og fylgjast með í fyrirlestrum, jafnvel þótt þeir tengist ekki áhugasviði hans
lesa allan almennan texta, bókmenntatexta og fjölbreyttar gerðir texta hvort sem er úr fjölmiðlum eða tímaritum á því sviði sem hann þekkir
tjá sig hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér, geta útskýrt mál sitt og tekið þátt í almennum umræðum
rita skýran og velsamsettan texta með rökstuðningi máli sínu til framdráttar og geta hagað ritstíl nokkuð eftir tilefni hverju sinni
túlkað bókmenntatexta á mismunandi hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál svo sem samræður og fjölmiðlaefni, inntak erinda og annað tiltölulega flókið efni
tileinka sér innihald ritaðs texta, átta sig á dýpri merkingu texta og geta nýtt textana á mismunandi hátt
geta tjáð sig hiklaust, skipst á skoðunum og tekið þátt í samræðum við ólíka viðmælendur sem hafa dönsku að móðurmáli
geta sett fram hugmyndir sínar af talsverðu öryggi og komið þeim kunnáttusamlega til annarra
geta talað lipurlega og með nægilega góðum framburði, hrynjandi og áherslum til að vel skiljist
tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust frammi fyrir áheyrendum um efni sem hann hefur kynnt sér
skrifa læsilega texta um sérvalið efni frá eigin brjósti þar sem hugmyndaflug getur fengið að njóta sín
skrifa margs konar texta og fylgja þeim rithefðum sem við eiga hverju sinni