Grunnorðaforði fræða og vísinda. menningarheimur norður ameríku. 2. áfangi í ensku.
ENSK2OF05
6
enska
grunnorðaforði fræða og vísinda.. menningarheimur norður ameríku
Samþykkt af skóla
2
5
Áhersla er lögð á að nemendur verði vel læsir á flóknari texta en áður. Þeir verða þjálfaðir í að tileinka sér grunnorðaforða vísinda og fræða, tjá hugsun sína skýrt í ræðu og riti og rökstyðja skoðanir sínar. Áhersla er lögð á vandlegan lestur texta með það fyrir augum að byggja upp virkan og hagnýtan orðaforða. Nemendur kynnast menningarheimi Norður-Ameríku, fjallað verður um bandarískt samfélag, venjur og siði. Í tengslum við það verður unnið með bandarísk bókmenntaverk, kvikmyndir, heimildamyndir o.fl. sem túlkað verður út frá menningarlegu samhengi. Nemendur vinna í auknum mæli sjálfstætt að stærri ritunarverkefnum og viðameiri verkefnum svo sem kynningum á þematengdu efni sem fela í sér öflun upplýsinga á bókasafni og af neti.
ENSK2HA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
helstu menningarsvæðum þar sem tungumálið er notað sem móðurmál eða fyrsta mál
ólíkum viðhorfum og gildum og hvernig þau móta menninguna í þeim löndum þar sem tungumálið er notað
þverfaglegum orðaforða til markvissrar notkunar í námi á háskólastigi
rithefðum sem við eiga í textasmíð, m.a. um inngang með efnisyrðingu, meginmál með vel afmörkuðum efnisgreinum og niðurlag
mismunandi afstöðu og túlkun bókmenntahöfunda og dýpri merkingu texta
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
lesa fjölbreyttar gerðir texta, bæði fræðilega og bókmenntalega
beita þeim lestraraðferðum sem við eiga eftir gerð texta eða viðfangsefnis
greina og skilja málfarsmun á mismunandi málsvæðum
tjá sig munnlega skýrt og hnökralaust um málefni sem hann hefur kynnt sér
tjá sig skriflega bæði á formlegan og óformlegan hátt
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja daglegt mál, fjölmiðlaefni, inntak erinda, fræðigreinar og annað flóknara efni
taka þátt í skoðanaskiptum, færa rök fyrir máli sínu og svara mótbárum og gagnrökum á viðeigandi hátt
tjá sig skýrt, lipurlega og blaðalaust fyrir áheyrendum um sérvalið efni sem hann hefur kynnt sér
skrifa formlegan og óformlegan texta og beita rithefðum sem við eiga í textasmíð
nýta nýjan orðaforða í ræðu og riti
Símatsáfangi en lokapróf fyrir þá sem ná ekki lágmarksárangri