Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1323685542

    Hringhreyfing og þyngdarsvið, skriðþungi, vökvar, sveiflur og bylgjur, hljóð
    EÐLI3HÞ05
    3
    eðlisfræði
    hljóð, hringhreyfing og þyngdarsvið, skriðþungi, sveiflur og bylgjur, vökvar
    Samþykkt af skóla
    3
    5
    Í áfanganum eru nemendur látnir vinna með hugtök og þekkingu úr neðangreindum þáttum eðlisfræðinnar. Samtímis því eru nemendur þjálfaðir í þeim vinnubrögðum sem notuð eru við bóklegt og verklegt nám í þessum þáttum. Nemendur vinna bæði sjálfstætt og í hópum og lögð er áhersla á sjálfstæði og ábyrgð nemandans á eigin námsframvindu. Stefnt er að því að fara með hópinn í heimsókn í háskóla og/eða stofnun þar sem notast er við raungreinaþekkingu. Efnisþættir sem teknir verða fyrir í áfanganum eru: hringhreyfing og þyngdarsvið, skriðþungi, vökvar, sveiflur og bylgjur, hljóð og sjálfvalið eðlisfræðiefni. Síðasti efnisþátturinn, sjálfvalið eðlisfræðiefni, er útfærður þannig að nemendur vinna í litlum hópum að því að kynna sér afmarkað eðlisfræðiefni og úbúa fyrirlestra um það sem þeir flytja fyrir bekkjarfélaga sína.
    EÐLI3RS05
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • helstu hugtökum sem notuð eru til að lýsa hringhreyfingu og þyngdarsviði, skriðþunga og vökvum og fyrirbærum tengdum þeim efnisþáttum
    • helstu lögmálum sem tengjast ofangreindum efnisþáttum svo sem þyngdarlögmáli Newtons, lögmálinu um varðveislu skriðþunga, atlagslögmálinu, lögmálum Pascals og Arkimedesar
    • helstu hugtökum sem notuð eru til að lýsa sveiflum, bylgjum og hljóði sérstaklega og ýmsum fyrirbærum tengdum þeim efnisþáttum
    • helstu lögmálum sem tengjast ofangreindum efnisþáttum svo sem viðlagningarlögmálin og endurvarpslögmálinu
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • vinna með tölur og vigra í eðlisfræði og í vísindalegum vinnubrögðum
    • beita lögmálum og jöfnum við að leysa verkefni af ýmsu tagi
    • leiða út með rökrænum hætti jöfnu fyrir sambandi stærða út frá gefnum forsendum
    • vinna með hin ýmsu mælitæki við að framkvæma verklegar æfingar og vinna úr mæliniðurstöðum þeirra, m.a. með tölvuforritum eins og Word og Excel
    • setja fram eðlisfræðilegt umfjöllunarefni á skýran og markvissan hátt í ræðu og riti
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • sýna sjálfstæði í vinnubrögðum og bera ábyrgð á eigin námsframvindu
    • nota námsefni og gögn á markvissan hátt
    • yfirfæra þekkingu úr öðrum greinum til að auðvelda námið
    • meta hvort niðurstöður útreikninga og mælinga séu raunhæfar
    • tengja eðlisfræðina við daglegt líf og umhverfi og gera sér grein fyrir notagildi hennar
    Lokapróf og vinnueinkunn