Áfram er unnið með kennsluefnið Latitudes 1. Viðfangsefni undanfarans eru rifjuð upp og sett í nýtt samhengi. Áfram er unnið að aukinni færni nemenda í lesskilningi, tali, hlustun og ritun þar sem fléttað er inn í kennsluna menningu, siðum og samskiptavenjum frönskumælandi landa. Orðaforði er aukinn og ný málfræðiatriði þjálfuð.
Nemendur þjálfast m.a. í tjá sig um liðna atburði, ákveða stefnumót og skilgreina tíma, skilja og semja boðskort, tjá skoðun sína á einfaldan hátt, bjarga sér í verslunum og spyrja og vísa til vegar.
FRAN1FA05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
helstu grundvallarþáttum franska málkerfisins
frönskumælandi löndum og fengið aukna innsýn í menningu, samskiptavenjur og siði þjóðanna
einföldum samskiptum og tjáningu í mæltu og rituðu máli
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
skilja talað mál um kunnugleg efni þegar talað er skýrt, t.d. einfaldar leiðbeiningar og fyrirmæli, uppástungur og stuttar frásagnir
skilja einfalda texta af ýmsu tagi í nútíð og þátíð (núliðinni tíð) og vinna úr þeim á mismunandi hátt eftir því hver tilgangur með lestrinum er hverju sinni
afla sér einfaldra, hagnýtra upplýsinga og taka þátt í einföldum samræðum um efni sem hann þekkir með því að beita kurteisis- og málvenjum við hæfi
geta tjáð sig á einfaldan hátt um tilfinningar og viðhorf
geta sagt einfalda sögu og lýst liðnum atburðum og reynslu í stuttu máli
skrifa stutta texta í nútíð og þátíð (núliðinni tíð), svo sem einföld persónuleg bréf, skilaboð, boðskort, leiðarlýsingar og samtöl
nýta sér ýmis hjálpargögn í frönskunáminu
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skilja talað mál um kunnugleg efni
skilja meginatriði texta sem innihalda algengan orðaforða, m.a. á netinu, í blöðum og tímaritum
tjá sig munnlega við tilteknar aðstæður í samskiptum og beita viðeigandi mál- og samskiptavenjum
miðla á einfaldan hátt eigin þekkingu, skoðunum og tilfinningum sem og persónulegri reynslu
skrifa einfalda texta um málefni og atburði byggða á persónulegri og ímyndaðri reynslu