Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1323763650

    Yndislestur og talað mál
    ÞÝSK2YN03
    2
    þýska
    yndislestur og talað mál
    Samþykkt af skóla
    2
    3
    Markmiðið er að nemendur lesi þýsku sér til ánægju og gagns og þjálfist í að nota tungumálið til að tala um efni sem þeir hafa lesið og kynnt sér. Unnið verður með styttri bækur, ævintýri, ljóð, barnabækur og tímaritsgreinar. Nemendur velja að stórum hluta það efni sem þeir vinna með. Í upphafi áfangans eru nokkrar hefðbundnar kennslustundir þar sem efnisflokkar og vinnubrögð eru kynnt. Eftir það vinna nemendur hver fyrir sig en geta leitað aðstoðar kennara. Lögð er áhersla á sjálfstæð vinnubrögð. Nemendur kynna verkefni sín í einkaviðtölum við kennara eða skila skriflegum greinargerðum.
    ÞÝSK1Þ305
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • ólíkum textagerðum, s.s. styttri skáldsögum, smásögum, ævintýrum, barnabókum og tímaritsgreinum
    • þeim orðaforða sem nauðsynlegur er til að mæta hæfniviðmiðum áfangans
    • mannlífi og menningu í löndum þar sem þýska er töluð sem móðurmál
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa margs konar texta og vinna úr þeim á mismunandi hátt
    • kynna afmörkuð, undirbúin efni og taka þátt í samræðum um þau með því að beita framburði og málnotkun á sem réttastan hátt
    • skrifa styttri samfelldan texta, t.d. samantekt, draga ályktanir og tjá eigin skoðanir
    • nota hjálpargögn, svo sem orðabækur, við úrvinnslu texta
    • velja sér lesefni á hæfilegu þyngdarstigi
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • fjalla á nokkuð ítarlegan hátt, munnlega og skriflega, um efni sem hann hefur valið sér og tjá eigin skoðanir
    • fjalla um og halda uppi samræðum um efni sem hann hefur kynnt sér
    • vinna sjálfstætt og skipulega
    • meta eigið vinnuframlag
    • tileinka sér jákvætt viðhorf til þýskunnar og hafa trú á eigin kunnáttu
    Símatsáfangi