Það kom upp villa senda inn  Áfangi

    Áfangi Nánari upplýsingar


    Búið til: 1323769121

    Grunnáfangi í líffræði fyrir náttúruvísindabraut
    LÍFF2GR05
    3
    líffræði
    grunnáfangi í líffræði fyrir náttúruvísindabraut
    Samþykkt af skóla
    2
    5
    Í þessum byrjunaráfanga fyrir náttúruvísindadeild er gerð grein fyrir hlutverki líffræðinnar og tengslum hennar við aðrar fræðigreinar. Fjallað er um helstu viðfangsefni líffræðinnar, farið yfir grunnhugtök og líffræðilega ferla og fjölbreytileiki lífvera kynntur. Skoðað verður samspil milli lífvera og umhverfis. Helstu efnisþættir eru: líffræði sem fræðigrein og undirflokkar hennar, helstu sameiginleg einkenni lífvera, efni og helstu efnaferlar í lífverum, bygging og starfsemi fruma, fjölbreytileiki og flokkun lífvera, grundvallaratriði vistfræðinnar, æxlun lífvera, grundvallaratriði erfða og helstu kenningar um þróun. Lögð er áhersla á að nemendur öðlist þekkingu og skilning á umhverfi sínu og því sem menn eiga sameiginlegt með öðrum lífverum. Því er reynt að tengja líffræðina daglegu lífi og áhugasviði ungs fólks. Einnig eru verkefni tengd umhverfi nemenda með það fyrir augum að auka áhuga þeirra og kynna þeim mikilvægi þekkingar á líffræði í daglegu lífi. Nemendur verði undirbúnir undir frekara nám í líffræði og skyldum greinum.
    Engar
    Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
    • sérkennum líffræðinnar sem fræðigreinar og tengslum hennar við aðrar greinar
    • grundvallarhugtökum líffræðinnar
    • helstu einkennum lífvera
    • helstu fylkingum lífvera
    • grundvallaratriðum vistfræðinnar
    • helstu flokkum efna í lífverum
    • byggingu og starfsemi fruma
    • æxlun lífvera
    • helstu kenningum um erfðir og þróun
    Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
    • lesa líffræðilegar upplýsingar úr máli og myndum
    • skoða lífverur í náttúrunni og í smásjá
    • flokka lífverur og nota greiningarlykla
    • átta sig á einföldum erfðamynstrum
    • lesa í tengsl milli lífvera í umhverfinu
    Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
    • auka skilning á fyrirbærum náttúru- og raunvísinda
    • leggja gróft mat á upplýsingar sem tengjast líffræðilegum viðfangsefnum í samfélaginu á gagnrýninn hátt
    • tengja undirstöðuþekkingu í líffræði við daglegt líf og umhverfi og sjá notagildi hennar
    • taka ábyrgð á eigin lífi m.t.t. líffræðilegra þátta
    • afla sér frekari þekkingar á líffræðilegum viðfangsefnum
    Lokapróf og vinnueinkunn