Lotubundin föll, hornaföll og vigrar, tengsl algebru og rúmfræði, jafna hrings og sporbaugs, hornafallareglur. Yrðingarökfræði og talningarfræði.
STÆR2GN05
Nemandi skal hafa öðlast þekkingu og skilning á:
lotubundnum föllum og hornaföllum
sönnunum á helstu reglum í námsefninu
undirstöðureglum talningarfræðinnar, tvíliðustuðlum og Pascalsþríhyrningnum
jöfnum hrings og sporbaugs
hornafræði þríhyrninga, stefnuhorni línu, sínusreglu, kósínusreglu og flatarmálsreglu
almennri skilgreiningu hornafalla, bogamáli og umritunarreglum hornafalla
vigurreikningi í sléttum fleti, summu, mismun og innfeldi tveggja vigra og lengd vigurs, horni milli vigra, samsíða og hornréttum vigrum
rétthyrndum hnitum og pólhnitum
Nemandi skal hafa öðlast leikni í að:
sanna reglur og fylgja röksemdafærslum
reikna með vigrum
meðhöndla hornaföll og hornafallareglur
leysa talningarfræðileg vandamál
meðhöndla lotubundin föll og gröf þeirra, finna t. d. lotu og útslag
Nemandi skal geta hagnýtt þá almennu þekkingu og leikni sem hann hefur aflað sér til að:
skrá lausnir sínar skipulega, skiptast á skoðunum við aðra um þær og útskýra hugmyndir sínar og verk skilmerkilega á viðeigandi hátt
átta sig á nauðsynlegum og nægjanlegum skilyrðum fyrir lausn verkefna
skilja merkingu og tengsl hugtaka í námsefninu og vinna með þau
geta fylgt og skilið röksemdir og röksamhengi í mæltu máli og texta, þar með taldar sannanir í námsefni
beita skipulegum aðferðum við að leysa úr viðfangsefnum og þrautum, s. s. út frá þekkingu á lausnum svipaðra þrauta, unnið til baka frá þekktum stærðum eða með því að setja upp jöfnur